Fasteignaleitin
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 23. apríl 2026

Hallgerðargata 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
58.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
1.137.755 kr./m2
Fasteignamat
63.450.000 kr.
Brunabótamat
41.350.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2507562
Landnúmer
225434
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt í sölu - Hallgerðargata 19 (Sólborg) - Glæsileg 2ja. herb. íbúð með aukinni lofthæð, sérsmíðuðum innréttingum og svölum til suðurs inn í bakgarð.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 58,8 fermetra 2ja herbergja íbúð á 3. hæð (304) í nýlegu lyftuhúsi við Hallgerðargötu 19 í Reykjavík. Vandaðar innréttingar úr reyktri eik. Góðar svalir til suðurs sem snúa inn í skjólgóðan bakgarð. Stofa og eldhús mynda eitt alrými með gólfsíðum gluggum til suðurs. Vönduð Siemens Studioline tæki í eldhúsi. Möguleiki er að leigja stæði í bílakjallara fyrir sanngjarnt verð (9.400,- á mánuði). Rafhleðslustöðvar eru í bílakjallara. Sérgeymsla í kjallara sem er 8,3 fermetrar að stærð. Þvottaaðstaða innan íbúðar. 

Öll sameign er til fyrirmyndar og afar snyrtileg. Myndavéladyrasími er í húsinu. Flísar á sameiginlegu anddyri og teppi á stigapöllum. Lóðin er snyrtileg með hellulagðri stétt við hús. Hönnuðir byggingarinnar eru THG Arkitektar og Studio Arnhildur Palmadottir.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu (Borgartún, Nóatún og Laugalæk). Kaffihús og hárgreiðslustofa í húsinu. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sundin og Laugardalnum sjálfum (grasagarðurinn, húsdýragarðinn, skautasvellið í laugardal og íþróttasvæði). Íþróttasvæði Þróttar, Laugardalslaug og líkamsræktarstöðvar í næsta nágrenni. 

Nánari lýsing:

Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa er opin við eldhús. Gluggar eru gólfsíðir til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Snúa til suðurs inn í skjólgóðan bakgarð sem snýr að Laugardalnum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting úr reyktri eik sem nær upp í loft. Siemens bakaraofn, Siemens spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Eldhús er opið við stofu og eru gluggar til suðurs. Lýsing undir efri skápum og innfelld lýsing í loftum.
Svefnherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og góðum skápum úr reyktri eik sem ná upp í loft. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi og hluta veggja. Gólfhiti á baðherbergi. Flísalögð sturta og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask og upphengt salerni. Útloftun.

Bílakjallari: Hægt er að leigja stæði fyrir sanngjarnt verð sem er niðurgreitt fyrir íbúa í húsunum (kr. 9.400,- á mánuði).

Sérgeymsla: Er staðsett á jarðhæð sem er 8,3 fermetrar að stærð. Málað gólf, rafmagnstengill og loftræsting.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/11/202037.800.000 kr.42.100.000 kr.58.8 m2715.986 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Meistaravellir 33
IMG_5250.JPG
Meistaravellir 33
107 Reykjavík
83.2 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Þorláksgeisli 17
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Þorláksgeisli 17
113 Reykjavík
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
742 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 110
Bílastæði
Opið hús:26. apríl kl 13:30-14:00
Vetrarbraut 2 - íbúð 110
210 Garðabær
78.6 m2
Fjölbýlishús
211
950 þ.kr./m2
74.670.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 4 - íbúð 113
Bílastæði
Opið hús:26. apríl kl 13:30-14:00
Vetrarbraut 4 - íbúð 113
210 Garðabær
123 m2
Fjölbýlishús
412
996 þ.kr./m2
122.520.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin