Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Lundur 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
121.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
128.900.000 kr.
Fermetraverð
1.058.292 kr./m2
Fasteignamat
113.750.000 kr.
Brunabótamat
75.700.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2014
6. hæð af 9
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2327169
Landnúmer
221007
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Hæðir í húsi
9
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur - Svalalokun
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti / handkl.ofn
Inngangur
Sameiginlegur
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum kynnir einstaklega fallega, rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í glæsilegu 10 hæða lyftuhúsi við Lund 4 í Kópavogi.
Um er að ræða afar bjarta og vandaða eign þar sem stórir gólfsíðir gluggar gefa rýminu einstaka birtu og fallegt útsýni er yfir hluta Kópavogs og til sjávar.
Skipulag eignarinnar er einstaklega gott með rúmgóðu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild. Sérlega rúmgóðar vestursvalir með svalalokun þar sem hægt er að njóta síðdegis- og kvöldsólar allt árið um kring.
Eigninni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. Þá býður húsið einnig upp á sérlega glæsilega og vel búna sameiginlega þvottaaðstöðu sem er til mikilla þæginda fyrir íbúa.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 121,8 fm sem skiptist í íbúðarrými 114,5 fm og geymslu 7,3 fm.
* Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 116.950.000.- *

   SMELLTU HÉR og þú færð ALLAR UPPLÝSINGAR um eignina - Lundur 4 - íbúð 0604
 
   SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D

-   Aðkoma að húsinu og sameign eru einstaklega snyrtileg
-   Tvær lyftur eru í húsinu
-   Svalalokun á rúmlega 10 fm svölum til vesturs.
-   Gólfsíðir gluggar í stofu og borðstofu - Útsýni í vestur og norður
-   Tvö rúmgóð svefnherbergi og fataherbergi inn af hjónaherbergi
-   Vandaðar innréttingar
-   Sér þvottahús innan íbúðar með góðri innréttingu
-   Sérmerkt stæði í bílageymslu og er grunnlögn komin fyrir hleðslustöð 
-   Mjög góð sameiginleg þvottaaðstaða fyrir einkabíl íbúa í bílageymslu



Innan íbúðar eru: forstofa, þvottahús, sjónvarpshol, tvö herbergi, eldhús, samliggjandi stofa og borðstofa. 
Nánari lýsing eignar
Forstofan er falleg og rúmgóð með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Flísar á gólfi.
Þvottahúsið er inn úr forstofunni og er með góðri innréttingu, vaski og góðri vinnuaðstöðu.
Sjónvarpsholið er þegar komið er inn úr forstofunni og eru flísar á gólfi.
Eldhúsið er einstaklega rúmgott með flísum á gólfi, ljósum flísum á milli skápa, vönduðum innréttingum með granít borðplötum bæði á veggfastri innréttingu og eyjunni. Stór eldunareyja myndar miðpunkt rýmisins þar sem einnig er hægt að sitja við eyjuna en býður einnig upp á gott vinnupláss ásamt góðum hirslum og skemmtilega tengingu við stofu og borðstofu. Tæki í eldhúsi eru: veggfastur ofn, örbylgjuofn, helluborð í eyju, háfur yfir eyjunni og uppþvottavél. 
Stofan og borðstofan eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými þar sem stórir gólfsíðir gluggar eru til vesturs og norðurs og skapa einstaka birtu og fallegt útsýni. Parket á gólfi.
Svalir eru flísalagðarsnúa til vesturs og eru rúmgóðar með svalalokun og nýtast því sem notalegt aukarými stóran hluta ársins. Frábær staður til að njóta síðdegis- og kvöldsólar ásamt fallegu útsýni.
Svenherbergin eru tvö og eru bæði með parketi á gólfi.
Herbergi I - Hjónaherbergi

Bjart og rúmgott hjónaherbergi með fallega innréttuðu fataherbergi með innfelldri rennihurð. Peningaskápur í fataherbergi fylgir.
Herbergi II - Svefnherbergi / Skrifstofa
Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp sem hentar jafnt sem barnaherbergi, gestaherbergi eða heimaskrifstofu.
Baðherbergið er rúmgott með walk-in sturtu með hertu gleri, vegghengdu salerni, vandaðri innréttingu, handklæðaofni og góðu skápaplássi. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Geymsla - Sérgeymsla íbúðar er 7,3 fm fylgir eigninni.
Bílageymslan er fyrir íbúa í Lundi 2 - 6. Sérmerkt bílastæði íbúðar er vel staðsett í upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni. Í húsinu er mjög góð sameiginleg þvottaaðstaða fyrir einkabíl íbúanna og er til mikilla þæginda fyrir íbúa.
Sameignin er einstaklega snyrtileg og vel við haldið og eru tvær lyftur í húsinu íbúum til mikilla þæginda.

Lundur er eftirsótt og gróið hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir auk góðra samgangna. Svæðið sameinar nútímalegt borgarumhverfi og fallega náttúru með sjóinn og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Eignin býður upp á einstaklega aðlaðandi kosti fyrir þá sem geria kröfur bæði um gæði og þægindi. 

Allar nánari upplýsingar veita:
  Þórdís Björk Davíðs, lgf., í síma 862-1914  eða á thordis@remax.is
  Salvör Þóra Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is

---------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Hafðu samband í dag! - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
ERT ÞÚ Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM? Veistu ekki hvort þú eigir að fara af stað með þína eign og þú ekki búin/n að finna aðra??
Við kíkjum til þín í spjall og förum yfir málin saman! Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug og leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir bæði seljendur og kaupendur.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/04/201416.000.000 kr.49.000.000 kr.121.8 m2402.298 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2014
Fasteignanúmer
2327169
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B4
Númer eignar
2
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.950.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 9
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Geitland 6
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Geitland 6
Geitland 6
108 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
513
797 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 116
3D Sýn
Opið hús:11. ágúst kl 17:00-17:30
Álfhólsvegur 116
200 Kópavogur
99.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
836 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Kórsalir 5
Opið hús:11. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kórsalir 5
Kórsalir 5
201 Kópavogur
107.7 m2
Fjölbýlishús
32
779 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin