ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Trönudalur 11, 260 Reykjanesbær, íbúð 202, birt stærð 72.0 fm.
Um er að ræða einstaklega fallega og vel vandaða miðju íbúð á 2.hæð á vinsælum stað í Innri-Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús og stofu í opnu og björtu rými. Svalir með fallegu útsýni ásamt geymslu í sameign og sameignlegri hjóla og vagnageymslu. ** Vönduð og falleg eign á vinsælum stað í Innri-Njarðvík, Stapaskólahverfi.
** Sérinngangur
** Hiti í gólfi
** Sérsmíðaðar innréttingar frá Grindin ehf. Grindavík
** Blöndunartæki frá Grohe.
** Vönduð tæki frá AEG.
** Sér merkt bílastæði og sér hleðslustöð
** 30 min. akstur á höfuðborgarsvæðiðNánari upplýsingar veitir/veita:
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is. Nánari lýsing eignar:
Forstofa hefur flísar á gólfi, fataskáp, skúffur og hillur
Svefnherbergin eru tvö með harðparket á gólfi og fataskáp í báðum herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu, upphengdu klósetti og sérsmíðaðri innréttingu með handlaug, blöndunartækjum og spegli. vélrænt útsog með viftu. Aðstaða fyrir þvotaavél og þurrkara ásamt góðuskápaplássi
Eldhús hefur sérsmíðaða innréttingu með góðu plássi, tæki frá AEG, keramikhelluborð, bakarofn, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu og blöndunartæki frá Grohe.
Stofa er í opnu og fallegu rými með rennihurð út á svalir og harðparket á gólfi.
Svalir snúa til vesturs
Umhverfi: vinsæl staðsetning, stutt í bæði leik- og grunnskóla
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.