LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega bjart og rúmgott sex herbergja endaraðhús með bílskúr við Sæbólsbraut 23 í Kópavogi. Eignin stendur á skjólsælum og fjölskylduvænum stað og nýtur góðrar staðsetningar sem endahús með fallegu og sérlega vel nýttu útisvæði. Fallegur garður og samfelld timburverönd sem liggur umhverfis húsið til suðurs, vesturs og norðurs. Útisvæðin tengjast vel saman og bjóða upp á mismunandi dvalarsvæði eftir sólargangi og veðri. Veröndin er skjólgóð og afgirt að mestu með heitum potti og fallegum gróðri og skapar frábæra aðstöðu til útiveru og samveru.
Birt stærð eignarinnar er 181,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 22,7 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu og eldhús í björtu og opnu rými, fjögur svefnherbergi auk sjónvarpshols/vinnurýmis sem nýta má sem fjórða svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is.
Nánari lýsing
Forstofa með náttúrusteini á gólfi.
Gestasalerni með handlaug, upphengdu salerni og glugga, náttúrusteinn á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, vönduðum tækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur með föstum bekkjum. Harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu alrými með eldhúsi. Harðparket á gólfi og útgengt á verönd og þaðan áfram út á hið rúmgóða og skjólgóða útisvæði.
Stigi á efri hæð er teppalagður.
Sjónvarpshol/vinnurými er opið og bjart rými sem fimmta svefnherbergið. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, harðparketi á gólfi og útgengi á suðursvalir.
Barnaherbergi I með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi III með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt að hluta með gólfhita, vandaðri innréttingu, walk-in sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús með innréttingu inn í bílskúr.
Bílskúr er 22,7 fm með hillum og flísum á gólfi.
Garðurinn er skjólsæll og fallegur með gróðri og góðri tengingu við húsið. Á veröndinni er heitur pottur og góð aðstaða fyrir útihúsgögn, grill og samveru. Útisvæðið stækkar þannig í raunveruleg not eignarinnar yfir hlýrri mánuði ársins.
Útisvæðið er án efa einn af helstu kostum eignarinnar. Þar nýtur staðsetning endaraðhússins sín sérstaklega vel, en timburverönd liggur umhverfis húsið til suðurs, vesturs og norðurs og tengjast svæðin saman í eina heild. Þannig skapast fjölbreytt dvalarsvæði þar sem hægt er að njóta útiveru á mismunandi tímum dags.
Eigninni hefur verið vel við haldið. Meðal nýlegra framkvæmda samkvæmt upplýsingum seljenda er að skipt var um þakrennur að aftanverðu árið 2026 og gler í sólskála/eldhúsi var endurnýjað árið 2020.
Hér er um að ræða virkilega skemmtilega og vel skipulagða fjölskyldueign þar sem björt rými, góð herbergjaskipan og einstakt útisvæði endaraðhússins fara sérstaklega vel saman.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is. Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.