CROISETTE kynnir í einkasölu glæsilegt 225 fm raðhús í Lundi 76 í Kópavogi. Eignin er á tveimur hæðum, er rúmgóð og vel skipulögð með fjórum svefnherbergjum, góðri stofu, tveimur baðherbergjum, góðu eldhúsi og 27 fm bílskúr. Eignin er með stórum skjólsælum, sólríkum og timburlögðum palli í bakgarðinum með heitum potti. Þetta er góð eign í vinsælu hverfi í skjólsælum Kópavogsdalnum. Möguleiki á fimmta svefnherberginu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA NEÐRI HÆÐ Í 3-D
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EFRI HÆÐ Í 3-DNánari lýsing á neðri hæð:Forstofa: Góðir loftháir skápar, harðparket á gólfi.
Eldhús: Vel skipulagt opið eldhús með hvítlakkaðri innréttingu, tveimur ofnum, spanhelluborði, kvars í borði og eyju, rými fyrir tvöfaldan ísskáp, útdraganlegar skúffur eru undir borðum og góðir skápar fyrir ofan.
Stofa/borðstofa: Opið og bjart rými með stofu og eldhúsi. Veggfastur hvítlakkaður sjónvarpsskenkur. Útgengt út á stóran sólpall yfir öllum garðinum, heitur pottur. Undir stiganum er góður ryksuguskápur með góðu rými fyrir annað dót. Harðparket á gólfi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, "walk in" sturta með glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn, innrétting með vaski og speglaskáp.
Barnaherbergi: Gott herbergi með skáp, harðparket á gólfi.
Nánari lýsing á efri hæð:Hjónaherbergi: Gott herbergi með fataherbergi með rennihurð og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með tvöföldum loftháum skápum.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með góðum loftháum skápum.
Baðherbergi: Vel skipulagt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, góð sturta með innfelldum blöndunartækjum, baðkar, handklæðaofn, upphengt salerni, góð hvítlökkuð innrétting með útdraganlegum skúffum, speglaskápur yfir vaskborði.
Sjónvarpsstofa: Gott rými sem er nýtt sem sjónvarpsherbergi en hægt með lítilli fyrirhöfn að gera fimmta svefnherbergið. Útgengt út á suðursvalir. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Flísalagt gólf, góð innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og vaskaborð.
Bílskúr: 27 fm bílskúr með fjarstýrðum opnara.
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.