Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2026

Jöfursbás 3B íb 404

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
94.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
971.459 kr./m2
Mynd af Agnar Agnarsson
Agnar Agnarsson
Löggiltur Fasteignasali
Geymsla 8.9m2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541116
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
404
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Lóð
0,5
Upphitun
Hitaveita gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Kvöð / kvaðir
Fasteignasali á Domusnova Fasteignasölu er óbeinn hluthafi í félaginu sem að selur
Domusnova kynnir: Jöfursbás 3 - glæsilegar, nýjar, vel hannaðar og fallegar íbúðir við strandlengjuna í Gufunesi.  Íbúðir í fjölbreyttum stærðum og gerðum frá 42-170 fm, margar með fallega sjávarsýn og útsýni til fjalla. Mikil nánd við náttúruna og hafið. Kappkostað hefur verið við að skipulag íbúða sé með besta móti, þar sem hver fermetri nýtist vel. Fullbúnar íbúðir, hannaðar af innanhúshönnuðum með fallegum sérsmíðuðum innréttingum, vönduðum gólfefnum og tækjum.  
  • Aukin lofthæð í flestum íbúðum - Mikið um gólfsíða glugga
  • Sérsmíðaðar innréttingar sem ná til lofts - Innbyggður ísskápur og uppþvottavél
  • Quartz steinn á borðplötum - Undirlímdir vaskar
  • Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum - Hiti í öllum gólfum
  • Sjávar eða fjallasýn úr mörgum íbúðum - Rúmgóðir inngarðar með skemmtilegum leiktækjum
  • Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu - Spennandi umhverfisskipulag í tengslum við náttúruna
  • Snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu - Áhersla á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði
Þessi íbúð – 0404B
Íbúðin er á fjórðu hæð og er 3ja herbergja samtals 94,6 fm þar af geymsla 8,9 fm. Íbúðin er með 25,7 fm suður þaksvölum og þvottahúsi. Íbúðinni fylgir eitt bílastæði í bílakjallara merkt B26 og sér geymsla merkt 0014 í sameign. ATH Myndir úr íbúð eru tölvuteiknaðar og kunna að vera af öðrum íbúðum hússins.
Nánari lýsing:
Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Eldhús opið inn í bjart alrými með sérsmíðaðri VOKE innréttingu, quartz steini á borðplötum og AEG heimilistækjum.
Stofa er rúmgóð með góðri birtu og útgengi út 25,7 fm þaksvalir til suðurs.
Baðherbergi flísalagt með vandaðri innréttingu, quartz borðplötu.
Þvottahús sem er flísalagt.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp sem nær upp í loft og parket á gólfi
Svefnherbergi #2 með fataskáp sem nær upp í loft og með parketi á gólfi
Geymsla er staðsett á sér geymslugangi í kjallara hússins.
Sameign er með hjóla- og vagnageymslu í kjallara, djúpgámum á lóð fyrir flokkað rusl og hitalögnum í helstu gönguleiðum lóðar.

Hverfið í hjarta náttúrunnar:
Staðsett við fallega vogskorna ströndina með einstöku útsýni, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. 
Í Gufunesi er iðandi mannlíf, veitingastaður, glæsileg gyllt strönd þar sem hægt er að slaka á í fargufu, þeysast um sundin blá á sæþotu eða njóta útivistar á kajak. 
Stærsta kvikmyndaver Evrópu er staðsett í Gufunesi og þar er að byggjast upp líflegt samfélag skapandi greina. 
Í næsta nágrenni má finna alla helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, grunnskólar, leikskólar eða íþróttamannvirki. Í Spönginni eru m.a. matvöruverslanir, veitingastaðir, vínbúð, bókasafn, apótek, heilsugæsla, menningarmiðstöð og tónlistarskóli.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Golfvellir eru skammt undan.


Sjá heimasíðu verkefnis HÉR
Sjá nánar skilalýsingu íbúða HÉR

Nánari upplýsingar veita:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 891-8660 / vilborg@domusnova.is
Vera Sigurðardótttir löggiltur fasteignasali / s. 866 1110 / vera@domusnova.is
Ingunn B. Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 856-3566/ ingunn@domusnova.is
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s. 854-2226 / vidir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s. 820-1002 / agnar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
8.9 m2
Fasteignanúmer
2541116

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunteigur 28
Opið hús:31. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunteigur 28
Hraunteigur 28
105 Reykjavík
101.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
750 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 16
Bílastæði
Opið hús:02. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Strandvegur 16
Strandvegur 16
210 Garðabær
121.5 m2
Fjölbýlishús
32
781 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 136
Bílskúr
Skoða eignina Hringbraut 136
Hringbraut 136
230 Reykjanesbær
122.2 m2
Fjölbýlishús
312
474 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Drekadalur 9I - 02-03
Drekadalur 9I - 02-03
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
824 þ.kr./m2
52.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin