SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGOTT FJARKAHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* *STÓR SUÐUR GARÐUR* *FRÁBÆRT VERÐ* *STUTT Á STRÖNDINA OG Í LA ZENIA BOULEVARD*Þetta fjarkahús er staðsett á hinu vinsæla Playa Flamenca svæði og býður upp á frábært tækifæri fyrir þá sem vilja skapa sér draumaheimili á eftirsóttum stað. Húsið snýr í suður og nýtur því sólar allan daginn. Garðurinn er stór og býður upp á mikla möguleika. Eignin er í göngufæri við La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina, auk fjölbreytts úrvals verslana, veitingastaða, kaffihúsa og annarrar þjónustu.
Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869Nánari lýsing:Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, eitt fullbúið baðherbergi og gestasalerni á neðri hæð. Úr fremra svefnherbergi er útgengt á einkasvalir og á þakinu er rúmgóð þakverönd sem býður upp á fjölmarga möguleika.
Neðri hæð:Gengið er inn í bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og notalega heild. Fyrir framan húsið er rúmgóð verönd og afgirtur garður.
Efri hæð:Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi er út á svalir og þaðan er gengið upp á þaksvalir með fallegu útsýni.
Mikilvægt er að hafa í huga að eignin þarfnast gagngerra endurbóta og hefur kaupverðið verið sett með það í huga. Fyrir kaupendur sem eru tilbúnir að leggja í framkvæmdir býðst hér einstakt tækifæri til að umbreyta vel staðsettri eign í glæsilegt fjölskylduheimili, orlofseign eða fjárfestingarkost.
Eignir sem eru svona vel staðsettar og á stórum lóðum koma sjaldan á markað á þessu verði. Þessi eign er því sannarlega þess virði að skoða til að átta sig á þeim möguleikum sem hún hefur upp á að bjóða.
Staðsetning:Fjölmargir af bestu golfvöllum Costa Blanca svæðisins eru í næsta nágrenni, þar á meðal Las Ramblas, Campoamor, Villamartín, Vistabella og Las Colinas. Göngufæri er niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig, auk þess sem vinsæla verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard er í örstuttri fjarlægð. Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð. Í nágrenninu er einnig mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana sem auðvelt er að komast til gangandi.
Hér er um að ræða frábært tækifæri til að eignast vel staðsetta fasteign á hagstæðu verði á einu eftirsóttasta svæði Costa Blanca.
Verð 195.000 Evrur (ISK 28.300.000 - Gengi 1Evra=145ISK) + 9% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: suður garður, sér bílastæði, þakverönd, strönd,
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,