Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2025

Vesturbakki 7

Atvinnuhúsn.Suðurland/Þorlákshöfn-815
71.6 m2
Verð
23.900.000 kr.
Fermetraverð
333.799 kr./m2
Fasteignamat
15.600.000 kr.
Brunabótamat
27.800.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2518158
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
05
Lóðarréttindi
Leigulóð
Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf. kynna: Iðnaðarbil/ geymsluhúsnæði að Vesturbakka 7, á besta stað við höfnina í Þorláksshöfn.
Um er að ræða Vesturbakki 7E merkt 0105, fnr 251-8158, 815 Þorlákshöfn. 

iðnaðarbilið er skráð 71,6 m2. Góð lofthæð. Möguleiki er á að setja upp 30 fm milliloft.
Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.  Húsið skilast með ræstivask og hægt að koma fyrir salerni. Lóðin er malbikuð með nægum bílastæðum. Húsið skilast fullfrágengið samkvæmt lýsingu.
Húsið skiptist í 12 einingar. Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt.

Allar nánari upplýsingar veitir:  Sölvi Sævarsson lgf. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:
Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir:
Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Milliveggir:
Milliveggir eru úr álstoðum klæddir með spónarplötum og gifsi, einagraðir með steinull. Veggirnir eru sparslaðir og málaðir.
Hurðir:
Innkeyrsluhurðir eru frá Gluggatækni, litur RAL 7016 með samlitum trégluggum. Stærð hurða 380x400. Húsið er með vönduðum tré gluggum og hurðum. Litur RAL 7016.
Þak:
Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.

Á húsinu hvílir vask kvöð upp á c.a kr 1.800.000 miðað við dags. í október 2025.

Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Duusgata 10
Skoða eignina Duusgata 10
Duusgata 10
230 Reykjanesbær
747.4 m2
Atvinnuhúsn.
151615
455 þ.kr./m2
340.000.000 kr.
Skoða eignina Desjamýri 14
Skoða eignina Desjamýri 14
Desjamýri 14
270 Mosfellsbær
330.7 m2
Atvinnuhúsn.
2
Fasteignamat 55.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Desjamýri 14
Skoða eignina Desjamýri 14
Desjamýri 14
270 Mosfellsbær
532.7 m2
Atvinnuhúsn.
2
Fasteignamat 55.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Norðurhella 8
Til leigu
Skoða eignina Norðurhella 8
Norðurhella 8
221 Hafnarfjörður
169 m2
Atvinnuhúsn.
5
Fasteignamat 94.450.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin