LIND fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali kynnir til sölu eða langtímaleigu : mjög vandaða og
 vel skipulagða 131,1 fermetra,  fjögurra herbergja íbúð á 5. hæð með extra lolthæð og þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og sér þvottahúsi ásamt sér stæði í bílageymslu. Glæsilegt sjávar- og fjallaútsýni.  Gólfhiti og gólfsíðir gluggar í stofu og inn í hjónasvítu. Sameiginlegar þaksvalir eru á 6. og 7. hæð með einstöku útsýni.
Framkvæmdir eru að hefjast á gríðalega vel skiplagðri og fallegri byggingarlóð sem liggur með fram húsinu sem á eftir að gera svæðið og umhvefið mjög vistvænt og fallegt og mögulega hækka söluverð til framtíðar.Eignin skiptist : forstofa, hol, borðstofa og stofa í alrými með eldhúsi, þrjú herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og sér geymsla í sameign. 
Búið er að rýma íbúðina og allt nýmálað. Íbúðin er laus við undirritun kaupsamnings, lyklar á skrifstofu og sýning daglega. Bókið skoðun í síma 777-5454 eða elias@fastlind.isNánari lýsing:Forstofa : er með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Millihurð er á milli forstofu og alrými íbúðar.
Hol : parketlagt.
Stofa, borðstofa og eldhús : er í opnu og björtu alrými með gólfsíðum gluggum, útsýni og útgengi út á svalir. Fallegt sjávar- og fjallaútsýni að gömlu höfninni og víðar.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með neðri og efri skápum (ná upp í loft) með flísum á milli skápa , gott skápa- og skúffu pláss. Hvítur kvarts-steinn, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur með frysti. Mile gashelluborð og vifta þar fyrir ofan.
Hjónasvíta : er rúmgóð og björt með stórum gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum. Inn af herberginu er sér baðherbergi með upphengt salerni, sturtu, baðinnréttingu með speglaskáp yfir og handklæðaofn. Flísar á hluta af veggjum og á gólfi. 
Tvö barnaherbergi : með parketi á gólfi. Búið að breyta öðru herbergi í fataherbergi.
Þvottaherbergi : er með flísum á gólfi, hvít innrétting með efri og neðri skápum, lagt fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, skolvaskur.
Baðherbergi : flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan.
Eigninni fylgir 7,2 m2 
sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérmerkt stæði.  Í neðri bílakjallara ( mjög gott endabílastæði) með tengi fyrir rafbíl fylgir íbúðinni. 
Húsið var byggt árið 2014, hannað með opnum garði í miðju hússins. Þrjár lyftur eru í húsinu og sameiginlegar þaksvalir með einstöku útsýni á 6 og 7 hæð.
Í húsinu er húsfélag með húsverði. Húsið var málað að utan 2021. Eignin er vel staðsett i göngufæri við alla helstu þjónustu, verslanir og úrval af veitingastöðum. 
Allar upplýsingar veitir Elías Haraldsson fasteignasali í síma 777-5454 eða elias@fastlind.is