Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega glæsilegt, vel hannað og töluvert endurnýjað 191,9 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með 26,3 fermetra bílskúr á glæsilegri 832,0 fermetra lóð á rólegum og eftirsóttum stað við Njörvasund í Reykjavík.
Húsið, sem er með aukinni lofthæð að hluta, er teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni og stendur á fallegri lóð með góðri aðkomu, hellulögðu bílaplani, viðarverönd, tyrfðum flötum, fallegum trjágróðri og gróðurhúsi.
Húsið hefur vakið athygli fyrir einstaka hönnun arkitekst og hafa eigendur haldið í það varðandi efni og litaval við endurbætur.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að á sl. árum samkvæmt upplýsingum frá seljendum:
2010 - Frárennslislagnir, drenlagnir og lóð endurgerð með stéttum með hitalögnum undir.
2020 - Hús að utan múrviðgert og málað
2020 - Raflagnir endurnýjaðar, rafmagnsinntak og rafmagnstafla
2022 - Þakpappi, þakjárn, þakrennur og niðurföll
2024 - Ný girðing á lóð
Allar innihurðir hafa verið endurnýjaðar auk baðherbergis á aðalhæð hússins. Gegnheilt parket er á gólfum.
Eignin er sýnd skv. samkomulagi. Bókið einkaskoðun í s: 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð með gólfhita og fatahengi.
Gangur, parketlagður.
Eldhús, parketlagt og rúmgott með gólfhita. Fallegar Alno innréttingar með flísum á milli skápa, ný tæki, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél og góð föst borðaðstaða.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, hiti í gólfi, upphengt wc, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri.
Hol, parketlagt, var áður herbergi og auðvelt að gera aftur.
Barnaherbergi l, parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergi ll, parketlagt, nýjir fataskápar og útgengi á lóð hússins.
Borðstofa, parketlögð og með gólfhita, opið við stofu og með útgengi á skjólsæla viðarverönd og þaðan út á lóð.
Stofa / sjónvarpsstofa, sem gengið er upp í um nokkur þrep úr borðstofu er parketlögð og rúmgóð með gólfsiðum gluggum að hluta og mjög fallegum arni.
Gengið er niður á neðri hæð hússins um parketlagðan stiga með lýsingu í vevggjum.
Hol, parketlagt.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum og gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, sturtuklefi og innrétting.
Inn af baðherbergi er hitakompa og geymsla með glugga.
Þvottaherbergi, rúmgott með glugga og útgengi á lóð, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, gott vinnuborð og vaskur.
Bílskúr, sem er 26,3 fermetrar að stærð, er með rafhleðslustöð, hita, heitu og köldu vatni, rafknúinni innkeyrsluhurð, gönguhurð á hlið og kaldri útigeymslu við enda sem er ekki í fermetratölu bílskúrs.
Húsið að utan lítur mjög vel út og hefur alla tíð fengið mjög gott viðhald.
Lóðin, sem er 832,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin og mjög glæsileg. Á framlóð eru stór hellulögð innkeyrsla, hellulögð stétt með hitalögnum í gönguleið og stigapalli, tyrfð flöt, trjábeð, viðarverönd og gróðurhús.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað í botlanga í Voga / Sundahverfi þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.