Fasteignaleitin
Skráð 18. júlí 2026

Tunguás 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
250.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
136.700.000 kr.
Byggt 2000
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
22469641
Húsgerð
Einbýlishús

Vandað og stórglæsilegt einbýlishús við Tunguás 1 í Ásahverfinu í 210 Garðabæ. Húsið er viðhaldslétt og staðsett á hornlóð með glæsilegt útsýni í átt að Bessastöðum og Snæfellsjökli. Garðurinn er fallega hannaður með lýsingu, timburverönd og heitum potti. Húsið er skráð samkvæmt Þjóðskrá samtals 250,6 fm. og er bílskúrinn 38,7 fm. Auk þess er 10 fm. geymsluskúr á lóðinni með rafmagni. Eignin er með fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Gólfhiti og ofnar eru í húsinu.

Efri hæð; Anddyri, stofa, eldhús og gestasnyrting, bílskúr og geymsla. Neðri hæð; Hjónasvíta, sjónvarpshol, 3 rúmgóð barnaherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Nánari lýsing:
Efri hæð

Forstofa: komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með eikarfataskáp sem hefur verið lakkaður svartur. Á hægri hönd er gott flísalagt fatahol og er innangengt í bílskúr frá fataholi sem er með góðu skápaplássi.
Gestasnyrting: Er með fallegri innréttingu granít á borði og upphengt salerni. 
Eldhús: Eldhúsið er glæsilega hannað, vel útbúið með vönduðum tækjum. Nýlegur Miele ofn. Eldhúsinnréttingin er með góðu skápaplássi og ljósum stein á borðum. Gashelluborð með fallegum háfi. Löng og góð eldhúseyja með vaski, innfelldri uppþvottavél og góðu skúffuplássi. Gólfsíður gluggi með rennihurð, frönskum svölum með rimlum fyrir. Gólf er flísalagt með fallegum flísum, þeim sömu og í anddyri og á gestasnyrtingu. Fyrir 5 árum voru nýjar flísar settar á votrými og gólfhiti. Teikningar eru ekki í samræmi við samþykktar teikningar. 
Stofa: Er björt með gegnheilu niðurlímdu parketi á gólfi sem var pússað fyrir 5 árum. Aukin lofthæð með innfelldri lýsingu. Stórir gluggar með miklu útsýni á Snæfellsjökul, Seltjarnarnes og víðar. Gasarinn og skenkur er glæsilegur og setur einstaklega fallegan svip á stofuna. Gólfsíðir gluggar og rennihurð með rimlum eins og í eldhúsi.

Neðri hæð 
Gengið er niður parketlagðan stiga  á neðri hæð hússins.  Neðri hæðin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Gott sjónvarpsherbergi sem er parketlagt og er útgengt út á verönd með heitum potti af svefnherbergisgangi. Innaf sjónvarpsherbergi er hjónaálma.
Hjónasvíta: Herbergið er parketlagt að mestu en flísar liggja meðfram gólfsíðum gluggavegg inn að baðherbergi, fataherbergi er inn af hjónaherberginu með góðu fatahengi, hillum og skúffum. Fallegt útsýni út í garð og á heitan pott.
Baðherbergi er með sturtu, nýlegum tækjum, innréttingu og vegghengdu salerni. Blöndunartæki fyrir heita pottinn.
Barnaherbergi: Barnaherbergi eru andspænis hjónasvítu og eru alls þrjú. Stærðir herbergja eru 13 fm, 10,1 fm og 9,6 fm og eru þau öll með fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfum og með gluggum til norðurs. Endaherbergið sem er 13 fm er einnig með gólfsíðum rúmgóðum glugga til suðurs. 
Baðherbergi:  Glæsilegt baðherbergi sem var allt endurhannað og endurnýjað árið 2023. Glæsilegur marmarasteinn á borði. Frístandandi baðkar. Sturta með innfelldum blöndunartækjum. Gluggi er á baðherbergi. Falleg lýsing í loftum og innréttingu. Gólfhitinn endurnýjaður 2023. 
Þvottahús með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. Vaskur og niðurfall. Geymsla innaf þvottahúsi.
 
Bílskúr: 38,7 fm. og er með rafstýrðri hurð og epoxy á gólfi sem var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Innaf  honum er geymsla. Gott skápapláss og skóhillur eru í bílskúr. Lagnir fyrir vask. 

Hiti í plani, zink skjólveggur er að framanverðu þar sem hægt er að njóta morgunsólarinnar. Húsið er viðhaldslétt með zinkþaki. Garðurinn er vel hannaður, afgirt timburverönd með heitum potti er á neðri pallinum. Rúmgóður geymsluskúr er í garðinum. Falleg lýsing og glæsilegur gróður sem hefur verið hugsað vel um.
Þetta er einstaklega vel hannað 250 fm útsýnis hús, þar sem vandað hefur verið til við hvert smáatriði.   Mjög vel staðsett í Ásahverfi í 210 Garðabæ. Sjón er sögu ríkari.

Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 896-5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valborg - fast. og ráðgj. ehf
valborgfs.is

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Friggjarbrunnur 7
3D Sýn
Bílskúr
Heitur pottur
Friggjarbrunnur 7
113 Reykjavík
250.8 m2
Einbýlishús
614
717 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
235 m2
Einbýlishús
534
339 þ.kr./m2
79.700.000 kr.
Skoða eignina Skagabraut 42
Bílskúr
Skoða eignina Skagabraut 42
Skagabraut 42
251 Garður
245.4 m2
Einbýlishús
614
357 þ.kr./m2
87.700.000 kr.
Skoða eignina Hjallabrekka 28
Heitur pottur
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hjallabrekka 28
Hjallabrekka 28
200 Kópavogur
180 m2
Einbýlishús
52
777 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin