Fasteignaleitin
Skráð 12. apríl 2025
Deila eign
Deila

Gauksrimi 4

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
211.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
470.227 kr./m2
Fasteignamat
88.850.000 kr.
Brunabótamat
90.750.000 kr.
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2186069
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upphaflegar og endurnýjað
Raflagnir
upphaflegar að mestu
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
móða í nokkrum rúðum
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir og sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Virðist vera kominn tími á að þrífa og mála þak.
Gallar
3-4 rúður með móðu. Pússa þarf upp stiga milli hæða.
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Reisulegt 6 herbergja einbýlishús með stórum bílskúr í grónu og vinsælu hverfi. Hús hefur verið töluvert endurnýjað. M.a. eldhús og baðherbergi.
Húsið sem er timburhús var byggt 1984 og er það 163,6 fm og bílskúr sem er frístandandi er 48 fm. Alls 211,6 fm. Vandað og vel viðað hús, klæðning lítur vel út sem og gluggar sem eru úr harðviði.

Geymsla í garði, ca 15 fm einangruð og með rafmagni, yfirbyggt útiskýli og gróðurhús.
Hellulögð innkeyrsla og stétt heim að húsi, snjóbræðslulagnir. Gróin lóð og sólpallur með heitum potti sunnan við hús. Sökkull fyrir garðskála frá byggingarári hússins og teikningar fyrirliggjandi.

Nánari lýsing.

Aðalhæð: Forstofa með fatahengi, nýjar flísar. Forstofuherbergi með fataskáp, nýtt harðparket. Forstofusalerni. Innan við forstofu er opið rými, hol, eldhús, borðstofa og stofa. Útgengt á sólpall úr stofu. Nýbúið er að breyta þessu rými hússins og opna það og var þá settur gólfhiti. Ný gólfefni, ný eldhúsinnrétting með eyju og vandaður ofn og spanhelluborð með gufugleypi. Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Rafmagn yfirfarið og allt nýmálað. Búr inn af eldhúsi og þvottahús með sérinngangi, Nýtt vinnuborð með vaski.
Veglegur furustigi upp á efri hæð úr holi. Gott geymslupláss undir stiga. 

Efri hæð: Rúmgott opið rými/stofa.  Þrjú herbergi, fataskápar í tveimur þeirra, suðursvalir út frá stofu.  Baðherbergi með baðkari og sturtu, nýlega endurnýjað. Geymsla. Á gólfum er parket en baðherbergi flísalagt. Hægt er að bæta við fimmta svefnherberginu þar sem nú er stofa á efri hæð, framan við svalir. (var áður þannig)
Aðalhæð er 92 fm og efri hæð skráð 71,6 en gólfflötur efri hæðar er 92 fm en hluti hennar er undir súð.

Bílskúr er frístandandi, eitt opið rými og geymsluloft. Hurðaopnari og gönguhurð.

Áhugaverð og skemmtileg eign miðsvæðis á Selfossi sem hentar vel fyrir stóra fjölskyldu auk þess sem bílskúrinn bíður upp á marga möguleika. Góð staðsetning og stutt í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, íþróttasvæðið og miðbærinn í þægilegu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið einkaskoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/06/202052.550.000 kr.52.000.000 kr.211.6 m2245.746 kr.
30/09/200928.510.000 kr.31.000.000 kr.211.6 m2146.502 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1984
48 m2
Fasteignanúmer
2186069
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.300.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baugstjörn 30
Bílskúr
Skoða eignina Baugstjörn 30
Baugstjörn 30
800 Selfoss
185.5 m2
Einbýlishús
524
533 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Akraland 13
Bílskúr
Skoða eignina Akraland 13
Akraland 13
800 Selfoss
161.7 m2
Parhús
514
593 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Birkivellir 14
Bílskúr
Skoða eignina Birkivellir 14
Birkivellir 14
800 Selfoss
245.3 m2
Einbýlishús
635
407 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngheiði 15
Bílskúr
Skoða eignina Lyngheiði 15
Lyngheiði 15
800 Selfoss
174.5 m2
Einbýlishús
613
567 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin