Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Sambyggð 6, íbúð 303, 815 Þorlákshöfn: Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýlishúsi. Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,4 fm.
Búið er að endurnýja og lagfæra húsið mikið að innan sem utan. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, í alrými er stofa / borðstofu /eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem staðsett er á jarðhæð. Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með innbyggðum hvítum fataskáp, parket gólfi.
Eldhús: Í alrými með stofu / borðstofu.
Ný hvít Ikea innrétting, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, bakaraofn, helluborð, háfur, plötur milli skápa, parket á gólfi.
Eldhúsið var flutt inn í stofu og endurnýjað. Stofa / borðstofa: Í alrými, útgengt er út á vestursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt herbergi, innfelldur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Í þessu rými var eldhúsið sem flutt var inn í stofu (alrými). Baðherbergi: Með góðri innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með hillum.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Sambyggð 6 - 8 er byggð 1990. Í Sambyggð 6 eru átta íbúðir.
Búið er að endurnýja húsið mikið að utan m.a. múrviðgerðir og málun á húsinu, skipt var um járn á þaki og rennur, endurnýja gluggar og gler.Lóð: Sameiginleg gróin lóð, stétt að húsi og malbikuð bílastæði.
Staðsetning: Smellið hér.Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni og húsinu:
Að innan:
* Færa og endurnýja eldhús s.s. innréttingu og eldhústæki.
* Nýr fataskápur í svefnherbergi og nýr fataskápur í forstofu.
* Nýjar innihurðir.
* Nýbúið er að sparsla og mála eignina að innan.
* Nýlegt parket/parketlistar á forstofu, stofu og svefnherbergjum.
Að utan: * Múrviðgerðir og málun á húsinu 2023.
* Nýir gluggar og gler 2021.
* Skipt var um járn á þaki og rennur 2017.
GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - TILVALIN FYRSTU KAUP - ER VEL STAÐSETT, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.