ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu fallega íbúð við Lindartún 27, 250 Garður, birt stærð 130.4 fm.
Vel staðsett íbúð innst í botnlanga, fullfrágengin lóð með stórri innkeyrslu. Sólpallar beggja megin við húsið.Nánari upplýsingar veitir Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5521, tölvupóstur elin@allt.is.Eignin er vel skipulögð og skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi, auk rúmgóðs bílskúrs með salernisaðstöðu.
Forstofa er flísalögð með góðu skápaplássi.
Þvottahús er inn af forstofu, með flísum á gólfi og veglegri hvítri innréttingu með skolvaski í borði.
Hol er parketlagt og tengir saman helstu rými eignarinnar.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri innréttingu, flísum á milli skápa og vönduðum heimilistækjum.
Baðherbergi er flísalagt bæði á gólfi og veggjum. Þar er góð hvít innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru tvö, bæði parketlögð og með fataskápum. Búið er að bæta við útgengi út á sólpall úr öðru herberginu.
Bílskúr sem byggður er 2007 er rúmgóður og fullbúinn með hita og rafmagni, flísum á gólfi, hurðaopnara og
salernisaðstöðu. Útgengt er út á baklóð úr bílskúr.
Gólfefni í hluta eignarinnar hefur verið endurnýjað á síðustu árum og var parket lagt fyrir um þremur árum. Þá hefur eignin einnig verið nýlega máluð að innan, þar á meðal veggir, hurðir, skápar og fataskápar, auk þess sem listar við hurðir og gólf eru nýlegir.
Húsið hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina. Allt húsið og stærstur hluti girðingarinnar var málaður síðastliðið sumar.
Á lóðinni hafa verið gerðar ýmsar endurbætur og framkvæmdir á síðustu árum. Framverönd hefur verið stækkuð, lóðin afgirt betur og lagðir stígar bæði í fram- og bakgarði. Á baklóð hefur verið byggður sólpallur og þar eru einnig ræktunarkassar fyrir grænmeti og kryddjurtir. Þá var byggt garðhús síðastliðið sumar, auk þess sem smá pallur var útbúinn til að auðvelda aðgengi frá bílskúr að bakgarði. Við inngang hússins hefur einnig verið sett upp bíslag sem veitir góða vörn gegn veðri og vindum.
Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5521, tölvupóstur elin@allt.is.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.