Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hlíðargata 8
Um er að ræða gott einbýlishús á tveimur hæðum við Hlíðargötu á Akureyri, eignin er staðsett á neðri Brekkunni skammt frá leik- og grunnskóla, sundlaug Akureyrar og miðbænum. Eignin er skráð samtals 142,3 fm. að stærð. Sér bílastæði við húsið, garður og verönd.
Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, tvær samliggjandi stofur og eldhús á efri hæð og á neðri hæð er forstofa/þvottahús, köld geymsla, baðherbergi, sjónvarsphol og tvö svefnherbergi.
Forstofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja. Fataskápur, innrétting við vask, baðkar og opnanlegur gluggi.
Stofurnar eru tvær á efri hæðinni, setustofa og borðstofa með parket á gólfum.
Eldhús með kork á gólfi, innrétting með ágætis skápa og vinnuplássi og stæði fyrir lítinn ísskáp.
Úr eldhúsi er gengið niður á neðri hæðina.
Sjónvarspshol með parket á gólfi og þaðan er gengið út á baklóð og í önnur rými neðri hæðar.
Svefnherbergin eru tvö á neðri hæðinni, bæði rúmgóð með parket á gólfum og fataskápum.
Forstofa/þvottahús með auka inngang beint af bílastæðinu norðan við hús. Þar eru skápar og innréttingar ásamt skolvask.
Geymsla er innaf þvottahúsi, köld geymsla.
Baðherbergi er innaf þvottahúsi, flísar á gólfi og veggjum að mestu, sturta flísalögð, innrétting við vask og stæði fyrir þvottavél, seljandi er með þurrkara staðsettan undir stiga beint fyrir framan baðherbergið. Opnanlegur gluggi á baði.
Garður austan og sunnan við hús, geymsluskúr á lóð, hellulagt bílastæði norðan við hús og timburverönd á suðvesturhorninu.
Annað:
- Ljósleiðari
- Gömul öryggi í rafmagnstöflunni.
- Gólfhiti og ofnar á neðri hæðinni og ofnar á efri hæð.
- Líklega eirlagnir að einhverjum hluta
- Bílastæðið upphitað með affalli af húsinu.
- Um og eftir 2006 var þakið endurnýjað og drenað var við húsið. Einng var steypt gólf á neðri hæðina.
ATH. fasteignasali hefur breytt grunnmyndum til að sýna núverandi nýtingu eignar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955