Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna:
Einbýlishús á einni hæð við Fossvogsbrún 8 í Kópavogi. Um er að ræða samtals 159,4 fm hús á 955 fm lóð með miklum og fallegum trjágróðri. Staðsett á frábærum stað mitt á milli útivistar perlanna Fossvogsdals og Elliðarárdals.Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á InstagramNánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með mjög skemmtilegum Terrazzo flísum og stórum glugga sem snýr út í garðinn.
Stofan er með fallegum arni og útgengi út í garð. Samliggjandi er borðstofan. Flísalögð verönd og gróðurhús við húsið.
Eldhús var endurnýjað 2023-2024. Gólfið var flotað og lagt microcement yfir. Nýjar vatnslagnir lagðar í eldhús og nýjar raflagnir að hluta. Heimilistækin eru nýleg. Ljós frá Rafkaup og falleg kvars borðplata frá Steinprýði. Niðurfellt helluborð og undirlímdur vaskur.
Geymsla er inn af eldhúsi. Geymslan er óklárað rými.
Baðherbergi er með mjög skemmtilegt 80s útlit. Það er flísalagt með sömu fallegu Terrazzo flísum og í forstofunni.
Herbergin eru þrjú, vel rúmgóð og öll með fataskápum.
Húsið hefur fengið heilmiklar endurbætur á síðustu árum.
2025 í vor var skipt um pappa og járn á þaki. Skipt var um timbur þar sem þurfti. Þakkantur og skorsteinn klæddir með hvítu áli auk þess sem skipt var um þakrennur.
2024 gróðurhús sett upp í garði (9 fm). Ný rafmagnstafla sett upp í geymslu og kapall lagður í gróðurhúsið.
2023 gluggar málaðir að utan.
2023 raflagnir endurnýjaðar að hluta þegar eldhús var tekið í gegn.
2022 gluggar málaðir að innan.
2022 birkiparket pússað upp og lakkað.
2022 þrír ofnar endurnýjaðir.
2022 frárennslislagnir myndaðar frá húsbrunni og að húsi. Lagnirnar eru úr plasti, ekkert athugavert kom í ljós við þessa skoðun.
Skemmtileg og hlýleg fjölskyldu eign. Gróðurhús og niðurgrafið trampólín í garðinum. Mikil gróðursæld er í garðinum og eins og áður sagði er Fossvogurinn í bakgarðinum og stuttur göngutúr er í Elliðarárdalinn.
Allar nánari upplýsingar veita:
Vernharð Þorleifsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699 7372 eða í tölvupóst: venni@remax.is
Magga Gísladóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 698 7494 eða í tölvupóst: magga@remax.is