Hraunhamar fasteignasala kynnir. Glæsilegt heilsárshús. Dagverðarnes 84, Skorradalur, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið sumarhús merkt 01-01, fastanúmer 226-1987 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Eignin Dagverðarnes 84 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-1987, birt stærð 125.0 fm. Að auki er um 11,5 fm. rými í kjallara sem er ekki í skráðum fermetrum og er húsið því um 136 fm. Lóðin er 10.317 fm. Eignarland mjög mikið gróin með fallegum trjám.Eigning skiptist eftirfarandi:Forstofa með skápum, flísar á gólfi
Hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi
2 svefnherbergi með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi með eikarinnréttingu, stór walk in sturta, flísar á gólfi og veggjum. Útgengið út á pallinn frá baðherbergi
Hol/gangur með skápum, flísar á gólfi
Eldhús, borðstofa og stofa í alrými. Eikarinnrétting í eldhúsi með eyju og vönduðum tækjum, útgengið er út á pallinn frá stofu. Parket á gólfum. Granít steinn á eldhúsbekkjum.
Efri hæð er mjög rúmgóð og er nýtt sem fjölskyldurými en getur verið nýtt sem fjórða svefnherbergið.
Kjallari er steyptur um 11,5 fm geymsla með hitakútum, rafmagns- og vatnsinntaki, gólfhitastýringum og innréttingu með vask. Hitablásari fyrir skó. Ný digital rafmagnsstýring á gólfhita með þráðlausum stillum fyrir hvert rými (
2025).Ný hitagrind fyrir stýringu á gólfhita
2025.
Mjög stór pallur um 225 fm. er við húsið og heitur pottur á palllinum.
Undir palli við hús eru tvö geymslurými annað er stórt geymslurými fyrir grill og útihúsgögn og hitt er fyrir áhöld td stiga, hjólbörur og annað.
Rut Káradóttir hannaði húsið að innan.Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Smíðaþjónustunni. Hurðar og innréttingar eru úr vandaðri beinstrífaðri eik. Ljósastýringar hannaðar af Lúmex og öll ljós frá Lúmex.Veggur við arinn og útihurð eru klæddir gegnheillu eikarparketi.
Parket á gólfi og hluta af veggjum í herbergjum er gegnheilt eykarparket. Mustang steinn á gólfum og á hillu kringum arinn, á baðherbergis borði og kringum eldavél.
Öryggishlið við þjóðveg inn á svæðið sem opnast með fjarstýringu eða símhringingu.
Frábært útsýni yfir Skorradalinn og vatniðEigninni fylgir 1/12 hlutur úr lóðinni Dagverðanes 74 sem er kvaðabundinn þannig að ekki er heimilt að byggja sumarhús á lóðinni. Lóðina má nýta sem sameiginlegt útivistarsvæði fyrir eigendur sumarhúsa á svæði nr. 5 í Dagverðanesi. Þetta þýðir að húsið er langt frá öllum öðrum húsum og í botni á götunni og það verður ekki byggt nær húsinu en það er í dag.
Skipti á íbúð eða íbúðum á höfðuborgarsvæðinu koma til greina.
Þetta er glæsileg eign í Skorradalnum sem vert er að skoða frekar !Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 44 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.