Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Hjallabraut 6, 815 Þorlákshöfn:Einstaklega vel staðsett 4 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar er 159,8 fm þ.a er íbúðahluti 128,8 fm og bílskúr 31 fm. Vel staðsett eign í grónu hverfi í hjarta Þorlákshafnar með fallegum skjólgóðum garði með suður svölum og sólpalli.
Skipulag eignar: Efri hæð: Forstofa, stofa / borðstofa, eldhús, svefnherbergisgangur, 3 svefnherbergi, baðherbergi. Neðri hæð: Stigagangur, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Efri hæð:Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Stór og björt stofa, útgengi út á flísalagðar suður svalir, parketi á gólfi og við hurð út á svalir eru flísar að hluta.
Eldhús: Með hvítri innréttingu, borðkrókur, nýr bakarofn og span helluborð, borðuppþvottavél sem fylgir með, flísar milli skápa, korkur á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Fataskápur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með með góðum fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi, veggskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með svartri innréttingu og speglaskáp með ljósi, baðker, flísalagt í hólf og gólf,
Neðri hæð:
Stigagangur: Úr eldhúsi er hurð niður á neðri hæð. Köld geymsla undir stiga. Gönguhurð út á framhlið á neðri hæð.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, vaskur, flísar á gólfi.
Geymsla: Inn af þvottahúsi, málað gólf.
Bílskúr: Stærð 31 fm, vinnuborð, kalt vatn, bílskúrshurðaopnari, málað gólf.
Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt árið 1968. Innréttingar eru frá frá Fagus ehf.
Lóð: Lóðin er 782,5 fm. Að framan er steypt innkeyrsla, stétt að húsi og steyptur stigi að aðalinngang. Á suðurhlið er sólpallur, hægt er að ganga niður´á sólpall úr stiga af svölum.
Staðsetning: Smellið hér. Húsið hefur verið endurnýjað þó nokkuð m.a. :* 2023 Þak málað 2023.
* 2020 Ný bílskúrshurð.
* 2020 Bílskúrsgólf flotað og málað.
* 2020 Þvottahús flotað og flísalagt.
* 2020 Ný baðherbergisinnrétting.
* 2020 Frárennslislagnir endurnýjaðar út í brunn.
* 2014 - 2015 Gluggar og gler endurnýjaðir að undanskildum bílskúrsgluggum og útihurð inn í forstofu endurnýjuð.
Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða og vel staðsetta eign miðsvæðis í Þorlákshöfn, stutt í alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.