Fasteignaleitin
Opið hús:22. mars kl 16:00-16:30
Skráð 19. júlí 2025

Vogaland 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
265.6 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
210.000.000 kr.
Fermetraverð
790.663 kr./m2
Fasteignamat
136.300.000 kr.
Brunabótamat
98.700.000 kr.
SG
Svan G Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2038267
Landnúmer
108848
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010201
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Glæsilega hannað einbýlishús á stórri og fallegri lóð í Fossvogsdalnum. Eignin er 265,6 fm og er skráð á tvö fastanúmer en á efri hæð eru stofur, eldhús, baðherbergi, 3 herbergi en á neðri hæð er herbergi, snyrting, bílskúr þvottahús og sér 2ja herbergja íbúð með sérinngangi sem einnig er aðgengileg frá holi og hægt að nýta hana með aðalíbúð. Stór og mikill garður á baklóð með sólpöllum og heitum potti. Húsið er teiknað af Guðmundi Kristni Guðmundssyni arkitekt sem teiknaði meðal annars Borgarleikhúsið og Seðlabankahúsið við Kalkofnsveg. Garðurinn er hannaður af Birni Jóhannssyni landslagsarkitek. Stutt göngufæri í Víkina og Fossvogsdalinn.

Inngangur er á neðri hæðinni í rúmgott hol, gengið er um hringstiga í miðju húsi upp á efri hæð og einkennir stiginn báðar hæðir hússins. Við taka sjónvarpsstofa, setustofa með arni og borðstofa. Svalir eru út frá setustofu. Eldhús með upprunalegri innréttingu og tækjum snýr að baklóð og er aðgengilegt bæði frá borðstofu og gangi. Baðherbergi er endurnýjað og er þar sturtuklefi með glerlokun, upphengt salerni, innrétting með vask. Baðherbergið er flísalagt að hluta. Hjónaherbergi með fataskápum og útgengi út svalir. Tvö önnur herbergi hafa verið sameinuð í eitt stórt og eru þar fataskápar. Útgeng er frá gangi út í garð á baklóð. Neðri hæð skiptist í herbergi, snyrtingu sem er flísalögð að hluta, innrétting með vaski. Þvottahús með flísum á gólfi, vinnuborð með vask, sturtuklefi í horni þvottahússins. Útengt er úr þvottahúsi út á lóð. Bílskúr er notaður sem herbergi/tómstundarrými aðgengilegur frá þvottahúsi. Sér 2ja herbergja íbúð er aðgengileg frá frá holi og hægt að nýta hana með aðalíbúðinni en hún er einnig með sérinngangi. Hún skiptist í litla forstofu með fataskápum, stofu með stórum gluggum, lítið eldhús með snyrtilegri eldri innréttingu, svefnherbergi með fataskápum og baðherbergi sem er flísalagt að mestu en þar er upphengt salerni, lítil innrétting með vask og sturtuklefi.


Garðurinn er mjög stór lokaður af með trjágróðri og girðingu. Þar er stór sólpallur, grasflatir og gönguleiðir. Aðgangur að garðinum er einnig frá gangi efri hæðar á pall og tröppur sem liggja niður í garð. Á sólpallinum er rafmagnspottur. Geymsluskúr er á lóðinni og önnur geymsla undir stiga. Sérlega skjólgott er í garðinum.

Aðkoma að húsinu og gönguleiðir báðum megin við húsið er gerðar með stimpilsteypu og er snjóbræðsla í mestum hluta hennar. Þakkantur er úr viðhaldsfríu zink.

Eignin er skráð á tvö fastanúmer sem eru F2038266 skráð stærð 42,8 fm og F2038266 skráð stærð 191,1 fm en um er að ræða gamla skráningu en nýlega er búið að mæla húsið upp og ný óþinglýst skráningartafla liggur fyrir með heildarstærð upp á 265,6 fm. Fasteignamat 2026 verður samtals 191.450.000.

Lóðin er 945 fm að stærð.

Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.

Hér er um að ræða einstakt hönnunarhús með stórum garði á skjólgóðum stað í Fossvogi.

Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mörkin 3
Til leigu
Skoða eignina Mörkin 3
Mörkin 3
108 Reykjavík
64.7 m2
Atvinnuhúsn.
1
Fasteignamat 20.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina HRAUNBRAUT 43
Bílskúr
Opið hús:23. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina HRAUNBRAUT 43
Hraunbraut 43
805 Selfoss
200.4 m2
Einbýlishús
423
544 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Básahraun 25
Bílskúr
Skoða eignina Básahraun 25
Básahraun 25
815 Þorlákshöfn
189.2 m2
Einbýlishús
514
508 þ.kr./m2
96.200.000 kr.
Skoða eignina Grundartún 4
Skoða eignina Grundartún 4
Grundartún 4
300 Akranes
167.2 m2
Einbýlishús
413
529 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin