Eignamiðlun kynnir:
Lundur 3 – Glæsileg þakíbúð á eftirsóttum staðStórglæsileg og einstaklega vel með farin þakíbúð á þessum eftirsótta stað. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og tvö bílastæði með hleðslustöðvum fylgja eigninni. Íbúðin státar af stórbrotnu útsýni og er væntanleg til afhendingar fljótlega.
Björgvin Snæbjörnsson, arkitekt hjá Apparati, sá um hönnun íbúðarinnar.
Skráning eignarEignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands sem hér segir: Fastanúmer 229-2434, eign merkt 10-01. Íbúðin er skráð 153,1 m² og sérgeymsla í sameign, merkt 29, er skráð 12,5 m². Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílageymslu, merkt B0-24 og B0-25. Skráð heildarstærð eignarinnar er 165,6 m². Svalir eru skráðar 78,1 m².
Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing eignarinnarÍbúðin er á efstu hæð hússins að Lundi 3, þar sem vandað hefur verið til verka í hvívetna. Innréttingar eru sérsmíðaðar úr vönduðum efnum og hannaðar með tímalausa fagurfræði að leiðarljósi. Þar má meðal annars nefna glæsilegar innréttingar frá JP Innréttingum, sérsmíðaðan arin, um þriggja metra háar hurðir og parket á gólfum. Gólfhiti er í íbúðinni.
Baðherbergin eru einstaklega smekklega innréttuð og af svölunum er glæsilegt útsýni ásamt heitum potti. Flest eldhústæki eru frá Miele, en ísskápurinn er frá Liebherr.
Eldhús: Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar, þrír ofnar, helluborð og innbyggður ísskápur með frysti. Steinn er á borðplötum.
Baðherbergi: Gestasalerni og aðalbaðherbergi sem tengist hjónaherberginu. Þar eru meðal annars „walk-in“-sturta, baðkar og vandaðar innréttingar.
Þvottahús: Rúmgott og vel skipulagt, með góðum skápum.
Herbergi/skrifstofa: Gott herbergi með skápum sem hentar einnig vel sem skrifstofa.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og beinum aðgangi að aðalbaðherbergi. Einnig er gengið beint út á svalir þar sem heitur pottur er.
Sjónvarpshol: Rúmgott og nýtist vel sem fjölskyldurými.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með arni, parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Forstofa: Með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Í sameign fylgja eigninni tvö rúmgóð bílastæði hlið við hlið í kjallara, bæði með hleðslustöðvum. Einnig fylgir sérgeymsla með hillum.
Nánari upplýsingar:H. Daði Hafþórsson, löggiltur fasteignasali, veitir nánari upplýsingar í síma 824-9096 eða með tölvupósti á dadi@eignamidlun.is.
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook