Skráð 19. jan. 2026

Fagranes 0

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
225 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
117.250.000 kr.
Brunabótamat
97.700.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Byggt 1946
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2066730
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt einbýli á mjög einstökum stað við bakka Elliðavatns í Kópavogi. Húsið sem var byggt 1946 stendur á stórri og gróinni 2.850 fermetra lóð alveg niður við vatnið. Það var algjörlega endurnýjað um 1994 og þá bætt við rishæð. Sér aðkeyrsla er að húsinu og einstaklega fallegt útsýni og kyrrð með aðgengi að vatninu þar sem hægt er að hafa bát til að sigla út.

Alveg einstök eign og frábært tækifæri til að eignast náttúruperlu á höfuðborgarsvæðinu sem býður upp á mikla möguleika og stendur mjög sér. 
Nýlega er búið að endurnýja lóðarleigusamning til ársins 2094.

Nánari upplýsingar og bókun á einkaskoðun er í s: 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.


Nýir gluggar eru í mest öllu húsinu, sem hefur verið þó nokkuð endurnýjað hið innra og ávallt fengið gott viðhald.
Stór geymsluskúr er á lóð við húsið og viðarverönd til suðurs. Sér inngangur er á jarðhæð og möguleiki að gera þar sér íbúð.


Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Vinnustofa, innangengt frá forstofu, steypt gólf og aukin lofthæð, innrétting og vaskur. Vinnustofa er í dag nýtt sem verkstæði og þaðan er útgengi á lóð. 
Baðherbergi, inn af forstofu, er mjög rúmgott, með glugga, flísalagt, innrétting, sturtuklefi, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gengið er upp nokkur þrep á hæð.
Hol, parketlagt. 
Borðstofa / stofa, parketlögð í einu rými og aukin lofthæð að hluta. Hurð er út frá borstofu þar sem gert er ráð fyrir svölum.
Eldhús, parketlagt og með fallegri hvítri viðarinnréttingu, viðarborðplötu, tengi fyrir uppþvottavél og ofn í vinnuhæð.
Hjónaherbergi, parketlagt með gluggum í tvær áttir og góðum fataskápum.
Barnaherbergi, parketlagt.
Gengið er upp á rishæð hússins um viðarstiga frá holi.
Rishæð, parketlagt opið stórt rými með aukinni lofthæð, gluggum til allra átta og einstöku útsýni.

Jarðhæð,
Forstofa, rúmgóð og flísalögð.
Gangur, parketlagður.
Baðherbergi, rúmgott með glugga, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, baðkar, innrétting og flísalögð sturta. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi l, korklagt.
Herbergi ll, korklagt, með stórum fataskápum og gluggum í tvær áttir.
Herbergi lll, parketlagt og með fataskáp.
Geymsla, á gangi með máluðu gólfi.

Geymsluskúr, sem er á lóð er ekki í fermetratölu eignar og er 16 fermetrar að stærð með hellulagðri stétt fyrir framan og viðarverönd til suðurs.

Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Búið er að endurnýja flestalla glugga og gler í húsinu. Þakjárn lítur vel út og almennt lítur húsið vel út að utan. 

Lóðin, sem er 2,850 fermetrar að stærð, er virkilega einstök, umlukin fallegum trjágróðri og tyrfðum flötum. Sér aðkeyrsla er að húsinu og malarplan framan við sem rúmar vel nokkra bíla. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega einstök á rólegum stað við Elliðavatn í Kópavogi, umlukin nátturufegurð og kyrrð.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er væntanlegum kaupendum því bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aflakór 17
Bílskúr
Skoða eignina Aflakór 17
Aflakór 17
203 Kópavogur
263 m2
Parhús
624
759 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Akrakór 5
Bílskúr
Skoða eignina Akrakór 5
Akrakór 5
203 Kópavogur
220.6 m2
Parhús
624
815 þ.kr./m2
179.800.000 kr.
Skoða eignina Hamrakór 6
Bílskúr
Opið hús:21. jan. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hamrakór 6
Hamrakór 6
203 Kópavogur
228.5 m2
Einbýlishús
524
868 þ.kr./m2
198.300.000 kr.
Skoða eignina Gulaþing 42
Bílskúr
Skoða eignina Gulaþing 42
Gulaþing 42
203 Kópavogur
174.1 m2
Fjölbýlishús
312
671 þ.kr./m2
116.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin