Valborg - fast. og ráðgj. ehf kynnir eignina Álhella 7, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 250-2631 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Eignin Álhella 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-2631, birt stærð 84.6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Borga Harðardóttir , í síma 8212412, tölvupóstur borga@valborgfs.is.Nánari lýsing:Um er að ræða rúmgott og bjart geymslu- og atvinnuhúsnæði með mikilli lofthæð, stórri innkeyrsluhurð og góðri aðkomu. Húsnæðið er í stálgrindarhúsi, byggðu árið 2018, og hentar vel undir ýmiss konar geymslu- og atvinnustarfsemi.
Eignin samanstendur af stórum opnum sal. Gólfið er steinsteypt og epoxylakkað.
Húsið er stálgrindarhús og eru útveggir og tvíhalla þak klædd samlokueiningum.
Að framanverðu er stór innkeyrsluhurð. Auk þess eru sérstakar gönguhurðir bæði að framan- og aftanverðu.
Sérbílastæði er á bak við húsið.
Teikning af millilofti liggur fyrir, sem gefur möguleika á frekari nýtingu lofthæðar húsnæðisins.
Athugið að ljósmyndin innan úr húsnæðinu hefur verið lagfærð með aðstoð gervigreindar. Breytingin eru eingöngu ætluð til að bæta framsetningu myndarinnar og sýna mögulega nýtingu og útfærslu á rýminu og gefa skýrari mynd af eigninni.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur verið óskað eftir lokaúttekt á eigninni, en hún hefur ekki farið fram.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.