Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 2, Garðabæ. Nýbyggingin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með ál- og bambus klæðningu. Góðar 2ja, 3ja 4ra og 5 herbergja íbúðir í litlu fjölbýli með lyftu. Útsýni er úr flestum íbúðum og timbur-verönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megin gólfefna en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði á lóð. Áætluð afhending íbúða er í apríl-maí 2026.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is og Katla Hanna Steed lögg. fasteignasali, í síma 822-1661 eða katla@haborg.isNánari lýsing á íbúð 109 3ja herbergja: Stærð 123,6 fm. Sérinngangur. Þegar komið er í forstofu eru góðir fataskápar og þaðan inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Barnaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Hjónaherbergi er einnig rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu. Sér þvottahús innaf eldhúsi. Alrými er mjög rúmgott og bjart með opið eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Stofur eru rúmgóðar og bjartar. Úr alrými og stofu er útgengt á verönd 20,0 fm að stærð með timbur pall að hluta til. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara merkt B20 og geymsla að stærð 9,5 fm.Nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast.Innréttingar í íbúðum: AXIS innréttingar í litnum CashmereGrey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með 60×60 Patch Beige flísum (Ragno). Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Egill Árnason hurðir, lamir og hurðabúnaður.
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð auk sérgeymslu í kjallara. Sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfi: Frábær staðsetning, þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Rólegt og fallegt umhverfi. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Einnig eru frábær útivistasvæði við strandlengjuna. Hestamannfélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru á svæðinu.
ATH: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það verður lagt á.Aðeins 4 mínútna akstur frá ljósunum við Actavis.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Athugið að myndir í auglýsingu eru teknar af sýningaríbúð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.