ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða 101,4 fm fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og afgirtri verönd að Dalsbraut 3 í Reykjanesbæ.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 101,4 fm að birtu flatarmáli, þar af er íbúðin 96,4 fm og sérgeymsla 5,0 fm.
Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð með þremur svefnherbergjum, stofu og eldhúsi í opnu alrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í sameign.
Íbúðin er á enda hússins og nýtur góðs næðis. Úr stofu er útgengt á afgirta verönd og sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 698-6655, tölvupóstur pall@allt.is.
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.isNánari lýsing eignar:Forstofa: Parket á gólfi og fataskápur.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Gluggar á tvo vegu veita góða birtu og útgengt er á afgirta verönd.
Eldhús: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými. Ljós eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi 1: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með skúffum og speglaskáp, upphengt salerni, walk-in sturta og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla, 5,0 fm, í sameign á jarðhæð.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Lóð og umhverfi
Við íbúðina er rúmgóð afgirt verönd sem snýr til suðurs og vesturs, með hellulögðu svæði og grasflöt. Íbúðin er á enda hússins og nýtur góðs næðis.
öngustígur liggur við hlið eignarinnar.
Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni og sameiginleg bílhleðslustöð er á lóðinni.
Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi, góðri útiaðstöðu og sérmerktu bílastæði á góðum stað í Innri-Njarðvík.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.