RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Fallega og mikið endurnýjaða tveggja til þriggja herbergja 71,3fm íbúð við Eskihlíð 15 í Hlíðunum í Reykjavík. Bæði húsið og íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum m.a. baðherbergi og gólfefni.Smelltu hér til að skoða eignina í 3D - þvídíddarumhverfi. Samkvæmt birtum fm er íbúðin 69,6 fm og sér geymsla í kjallara 1,7 fm.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum m.a. baðherbergið endurnýjað algjörlega, skipt um gólfefni í íbúðinni og farið í múrviðgerðir á húsinu auk þess sem það var steinað að utan.
Lýsing:Gengið er inní íbúðina baka til úr garði hússins, á hægri hönd við hurð íbúðar er þvottahús, er komið er inní íbúð er hol/forstofa úr því er gengið í öll rými íbúðar baðherbergi, eldhús, stofa og svefnherbergi, sameiginlegur garður.
Framkvæmdir síðustu ára:2025: Farið í múrviðgerðir á húsi og húsið steinað að utan.
2025: Skipt um glugga í sameign.
2024: Skipt um parket í íbúð í herbergjum og í holi.
2024: Baðherbergi endurnýjað á smekklegan máta.
2016-22: Skipt um frárennslilagnir.
2016-22: Drenað í kringum húsið.
2016-22: Skipt um þá glugga sem talið var þurfa.
Nánari lýsing:Forstofa/hol: Er nýlegu ljósu harðparketi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Nýlegna endurnýjað. Ljós innrétting viðarinnrétting, gluggi og handklæðaofn.
Eldhús: Er með ljósri eldhúsinnréttingu harðparket/dúk á gólfi.
Stofa / hjónaherbergi: Með nýlegu harðparketi og stórum skáp.
Geymsla: Er í sameign.
Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara.
Svefnherbergi: Með nýlegu parketi.
Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.