Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2024
Deila eign
Deila

Laufskógar 27

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
176 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
539.205 kr./m2
Fasteignamat
76.700.000 kr.
Brunabótamat
69.350.000 kr.
Byggt 1966
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2210696
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar í íbúðarhúsi fyrir 2016
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta, upprunalegt að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta, upprunalegt að hluta
Þak
Endurnýjað - járn, pappi og sperrur og þakkantur - undirnegling upprunaleg
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Lóð
0
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Komin er tími á glugga og gler á suðurhlið stofu (móða á milli glerja), farið er að leka með glugga, eldri eigendur „fylltu uppí"/lokuðu fyrir einn glugga á stofu. Gluggi í borðstofu og á gangi eru upprunalegir.
Rakamyndun virðist vera undir bílskúrsgólfi, bílskúr var drenaður á norðurhlið árið 2018. Komin er tími á glugga og gler á suðurhlið bílskúrs. Útidyrahurð hefur lekið í austanátt.
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LAUFSKÓGAR 27 , 810 Hveragerði. Fimm herbergja einbýlishús með bílskúr (vinnustofu) í grónu hverfi á vinsælum stað við Hamarinn í Hveragerði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er byggt árið 1966 og bílskúrinn árið 1968. Eignin skiptist í íbúð 131,0 m² og bílskúr, 45,0 m² samtals 176.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gangur og gestasalerni, þvottahús. Bílskúr með geymslu. 

Nánari lýsing: 
Anddyri með fatahengi, þaðan er innangengt í gestasalerni og í þvottahús. 
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, innangengt er í eldhús annarsvegar úr stofu og hinsvegar úr borðstofu. 
Eldhús, Ikea innrétting, Induction helluborð, Electrolux ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur. 
Svefnherbergisgangur með fjórum svefnherbergjum, fataskápur, útgengt er frá gangi út á timburverönd til suðurs.
Hjónaherbergi, opið er á milli hjónaherbergis og barnaherbergis (tvær hurðar svo möguleiki er á að breyta því til baka).
Barnaherbergin eru þrjú, ekkert þeirra eru með fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, upphengt salerni, vask innrétting, handklæðaofn og gluggi. 
Gestasalerni er inn af anddyri, upphengt salerni og vaskinnrétting, gluggi. 
Þvottahús er innan við anddyri, gluggi, útgengt er úr þvottahúsi út í garð, inntök hita eru í þvottahúsi. 
Gólfefni: Flæðandi harðparket frá Harðviðarval er á öllum rýmum nema anddyri, baðherbergi, gestasalerni og þvottahúsi. Flísar eru á anddyri, baðherbergi og gestasalerni. Málað gólf í þvottahúsi. Flotað gólf er í bílskúr. 

Bílskúr er stakstæður, geymsla er inni í bílskúr, málað gólf er í bílskúr. Tvær gönguhurðar eru á bílskúr önnur að bílastæði hin að íbúðarhúsi. Bílskúr hefur verið notaður sem vinnustofa síðastliðinn ár.
Heitt og kalt vatn, sér rafmagnstafla er í bílskúr, þriggja fasa rafmagn.  

Húsið er á einni hæð byggt úr holstein klætt að utan að hluta til með bárujárni (suður og austurhlið), Einhalla þak, járn á þaki. Bílskúr er á einni hæð, klæddur að hluta til með bárujárni, járn á þaki. Möl er í bílaplani framan við bílskúr. 
Timburverönd með skjólgirðingu er við húsið til suðurs, heitur pottur. Lóðin er afgirt að framan og aftanverðu, steypt stétt er að húsi, gróin lóð, mikið fallegan trjágróður meðal annars Selja fyrir framan og aftan hús, „krútt" kofi er í bakgarði, þvottasnúrur. 
Lóðin er 1271,3 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.

Húsið og garðurinn hafa verið talsvert endurnýjuð á árunum 2016-2023;
2016:

Nýtt þak, pappír, járn, einangrun
Gips loft og þil, loft og veggir málaðir og spartlaðir að innan.
Nýtt rafmagn dregið í hús og ný rafmagnstafla.
Opnað milli eldhúss og borðstofu.
Ný eldhúsinnrétting og nýjar lagnir út úr vegg.
Gluggar endurnýjaðir, gluggar frá Gluggavinum (gluggar íbúðarhúss nema stofa, borðstofa og gangur).
Hluti húss klætt með bárujárni og einangrað. 
Lagnir voru myndaðar frá baðherbergi, þær voru þá heilar en upprunalegar. Lagnir frá brunni í garði voru endurnýjaðar útí götu af bænum nokkru fyrr. 
2017:
Lóð endurbætt, jarðvegur og þökur norðanmegin. 
Gestasalerni innréttað og flíslagt, tengt fyrir lögnum vegna vasks og salernis. 
2018:
Drenað við norður hlið húss. Frárennslislagnir úr eldhúsi út í stofnæð endurnýjaðar. 
Drenað við þrjár hliðar bílskúrs (norður, austur og vestur).
2019:
Hús og bílskúr málað.
Bílskúr klæddur að utan að hluta til. 
Hús parketlagt með flæðandi harðparketi frá Harðviðarvali.
2020:
Bílskúr tekinn í gegn, loft einangrað og klætt, rafmagn dregið og ný þriggjafasa tafla. Vaskur og nýjir ofnar. Lagnir fyrir klósett og niðurfall ótengt við brunn í garði.
Nýjar hurðar í bílskúr og þvottahúsi frá Rationel; Húsasmiðjunni.
 
Vatnslagnir innanhúss voru endurnýjaðar af fyrri eigendum hússins.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/08/201626.550.000 kr.26.800.000 kr.176 m2152.272 kr.Nei
05/01/200721.380.000 kr.26.500.000 kr.176 m2150.568 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1968
45 m2
Fasteignanúmer
2210696
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.450.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina VALSHEIÐI 17
Bílskúr
Skoða eignina VALSHEIÐI 17
Valsheiði 17
810 Hveragerði
201.5 m2
Einbýlishús
615
486 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Kambahraun 38
Bílskúr
Opið hús:21. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Kambahraun 38
Kambahraun 38
810 Hveragerði
191.4 m2
Einbýlishús
513
515 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina DALAHRAUN 32
Bílskúr
Skoða eignina DALAHRAUN 32
Dalahraun 32
810 Hveragerði
166.7 m2
Raðhús
413
597 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Þurárhraun 29
Bílskúr
Skoða eignina Þurárhraun 29
Þurárhraun 29
815 Þorlákshöfn
199.5 m2
Einbýlishús
514
489 þ.kr./m2
97.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin