Fasteignaleitin
Skráð 15. maí 2025
Deila eign
Deila

Lindarhvammur 11

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
227 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
682.379 kr./m2
Fasteignamat
125.650.000 kr.
Brunabótamat
97.480.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1953
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2063864
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta - sjá ástandyfirlýsingu seljanda
Raflagnir
Þarfnast skoðunar
Frárennslislagnir
Þarfnast endurnýjunar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler - þarfnast skoðunar sjá ástandsyfirlýsingu seljanda
Þak
Endurnýjað 2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
3 sólpallar
Upphitun
Lofthitun
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Frárennslislagnir þarfnast endurnýjunar. 
Gluggar á neðri hæð og nokkrir í sólstofu þarfnast skoðunar
Ástandsskýrsla gerð 2025
Sérlega fallegt og vel skipulagt 227m2 Sigvalda-hús á rólegum og skjólsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs.  

** Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt.
** 4 svefnherbergi
** Kjallari undir stórum hluta hússins og möguleiki að útbúa aukaíbúð
** Skjólgóður garður með 3 sólpöllum.


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar skv. Þjóðskrá Íslands er 227m2, þar af 19m2 bílskúr. Fasteignamat ársins 2026 er 140.900.000 kr.

Nánari lýsing
Anddyri er með fatahengi og skóhirslum. Flísar á gólfum.
Stofa og borðstofa eru í sama rými. Parket á gólfum.
Sólskáli er rúmgóður með stórum gluggum. Útgengt út á viðarverönd. Flísar á gólfum.
Eldhús er með vandaðri viðarinnréttingu, helluborði, bakaraofni og viftu. Flísar á gólfum.
Baðherbergi I er með hvíta innréttingu, hornbaðkari með nuddi og handklæðaofni.
Gengið er niður nokkrar tröppur á herbergisgang þar sem er fjölskyldurými.
Svefnherbergi I er með góðum fataskápum. Parket á gólfum.
Svefnherbergi II er með fataskáp. Parket á gólfum.
Svefnherbergi III er með parket á gólfum.
Svefnherbergi IV er í kjallara með parket á gólfum
Skrifstofurými er í kjallara með sérinngangi.
Baðherbergi II er í kjallara er með sturtu, salerni og handlaug.
Þvottahús er í kjallara og er með útgengi út í garð.
Rýmið í kjallaranum er undir stórum hluta hússins sem hægt væri að innrétta sem litla aukaíbúð með sérinngangi.
Bílskúr 19m2 er sérstæður á lóðinni.
Lóðin er 912m2 að stærð og er garðurinn afar fallegur og gróinn. Í garðinum eru sólber, rifsber, rabbabari, mynta, skessujurt og villt jarðaber. Þrír sólpallar eru í kringum húsið. Á stærsta pallinum er heitur pottur og skjólgirðing.

Nýlegar framkvæmdir
** 2024 Þak endurnýjað síðastliðið sumar
** 2022 Húsið að utan lagfært og málað
** 2021 Heitur pottur og timbur á pöllum endurnýjað
** Drenlagnir fyrir ofan hús voru endurnýjaðar fyrir ca. 5 árum.

Innra skipulagi hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum þar sem eldhús var fært þar sem áður var svefnherbergi og sólskálanum var einnig bætt við síðar.

Lindarhvammur 11 er eign í sérflokki sem hönnuð var af hinum virta arkitekt Sigvalda Thordarson. Fyrir aftan garðinn er skrúðgarðurinn Hlíðargarður sem þykir ein af földu perlum höfðuborgarsvæðisins.
Sjón er sögu ríkari.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/08/201137.150.000 kr.41.000.000 kr.227 m2180.616 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1963
19 m2
Fasteignanúmer
2063864
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.030.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þinghólsbraut 8
Bílskúr
Opið hús:11. júní kl 17:15-17:45
Þinghólsbraut 8
200 Kópavogur
190 m2
Einbýlishús
514
868 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 3
Bílskúr
Skoða eignina Huldubraut 3
Huldubraut 3
200 Kópavogur
190.9 m2
Hæð
614
732 þ.kr./m2
139.700.000 kr.
Skoða eignina Bakkahjalli 10
Skoða eignina Bakkahjalli 10
Bakkahjalli 10
200 Kópavogur
240.8 m2
Parhús
524
685 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 67
Bílskúr
Álfhólsvegur 67
200 Kópavogur
198.1 m2
Einbýlishús
724
754 þ.kr./m2
149.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin