RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsilegt og vel hannað einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á eftirsóttum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða einstaklega fallegt fjölskylduhús sem hefur verið töluvert endurnýjað í gegnum árin. Húsið býður upp á björt og rúmgóð alrými, arinstofu með aukinni lofthæð og suður svölum, glæsilega hjónasvítu hannaða af Gassa arkitektum, fjögur svefnherbergi (hægt að breyta í sex svefnherbergi) og þrjú baðherbergi. Garðurinn er sannkallaður sælureitur með skjólgóðri verönd til suðurs með heitum potti, útisturtu og fallegu leikhúsi. Eignin er skráð samtals 302,5 fm., þar af er bílskúr 37,7 fm.
Falleg aðkoma er að húsinu þar sem lóð, stétt og útisvæði hafa verið endurnýjuð. Eignin stendur á 745 fm. gróinni lóð við rólegan botnlanga, með einstaklega góðri útiaðstöðu fyrir alla fjölskylduna. Stutt er í leik- og grunnskóla, alla helstu þjónustu og verslanir. KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
** BÓKIÐ EINKASKOÐUN ** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.isNánari lýsing efri hæð: Efri hæðin telur forstofu, opið hol, eldhús og borðstofu, sjónvarpsstofu, einstaklega bjarta og rúmgóða arinstofu, svalir til suðurs með grillgeymslu, glæsilega hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, svefnherbergi og baðherbergi. Forstofa er flísalögð, með nýlegri og vandaðri útidyrahurð.
Opið hol tengir saman helstu vistarverur og með fallegum stiga á milli hæða.
Eldhús og
borðstofa er samliggjandi í opnu rými með mikilli birtu og góðri lofthæð. Falleg viðarinnrétting með granítborðplötum, gott skápapláss og bökunarofn í vinnuhæð. Eldhúseyja er með gashelluborði og gufugleypi.
Sjónvarpsstofa er inn af eldhúsi, rúmgott og bjart. Möguleiki er að bæta þar við auka herbergi.
Stofan er
einstaklega björt og rúmgóð með
arin og aukinni lofthæð. Úr stofu er útgengt út á stórar
suðursvalir með góðri
grillgeymslu. Hjónasvítan er fallega hönnuð af Gassa arkitektum. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfum. Glæsilegt baðherbergi innaf svefnherbergi með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Fataherbergi með góðum hirslum. Flísalagt gólf og veggir að hluta.
Barnaherbergi rúmgott og bjart, parket á gólfum.
Baðherbergi er með fallegri vaskinnréttingu og góðum spegli, baðkar með sturtuaðstöðu. Handklæðaofn, upphengt salerni og góður opnanlegur gluggi. Flísalagt gólf og veggir að hluta.
Nánari lýsing neðri hæð: Neðri hæðin telur forstofu, opið hol, fjölskyldurými/stofu með útgengt út í garð, tvö svefnherbergi (áður þrjú), baðherbergi og rúmgott þvottahús. Geymsla er undir stiga ásamt stærri geymslu fyrir innan.Forstofa á neðri hæð er flísalögð með góðu fatahengi. Inn af forstofu er mjög
rúmgott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og góðu geymsluplássi. Opnanlegur gluggi og flísar á gólfum.
Baðherbergi á neðri hæð (inn af forstofu) er með fallegri vaskinnréttingu og góðum spegli, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, rúmgóð og björt með parketi á gólfum. Í stærra svefnherberginu eru góðar fatahirslur. Stærra herbergið var áður tvö minni, svo
möguleiki er að bæta við þriðja svefnherberginu á neðri hæð.
Fjölskyldurýmið er mjög bjart og rúmgott, sérsmíðaður bekkur með innbyggðri lýsingu og gólf flísalagt. Úr rýminu er útgengt út í garð.
Stór geymsla er undir stiga ásamt minni geymslu.
Bílskúr er skráður 37,7 fm að stærð, með vatni, rafmagni og nýlegri rafdrifinni bílskúrshurð. Snjóbræðsla er fyrir framan bílskúr í innkeyrslu.
Lóðin er 745 fm. að stærð, með einstaklega fallegum grónum garði og góðri útiaðstöðu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.