Fasteignaleitin
Skráð 25. apríl 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
117.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
1.017.827 kr./m2
Fasteignamat
10.450.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
JH
Jóhann Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532648
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Íbúð 310 - Verð 119.9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 310.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar vorið 2025.

Vönduð og björt 4ja herbergja íbúð á 3. hæð í Hlíðarhorni. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður). Birt stærð er 117,8 fm þar af 11,8 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.


Nánari lýsing:
Í rúmgóðu anddyri
er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri inn gang og inn í rúmgott alrými, eldhús
með eyju, stofu/borðstofu og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi með ljósri innréttingu og gráum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0024. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.


Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.


Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is


Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.


ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf.


Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.


Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 / 421
Bílastæði
Fálkahlíð 5 / 421
102 Reykjavík
123.3 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
1308 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
85.5 m2
Fjölbýlishús
211
1297 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
1380 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin