Vönduð eign á frábærum stað í Garðabæ með útsýni úr sólskála. SKOÐAR SKIPTI Á MINNI EIGN
Lögheimili og Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 8457445, gudrun@logheimili.is kynna í einkasölu:
Bjart, fallegt og mikið endurnýjað 133 fm raðhús innst í botnlanga á vinsælum stað miðsvæðis í Garðabæ þar sem stutt er í alla þjónustu, s.s. leik-grunn- tónlistar- og framhaldsskóla auk þess sem stutt er í verslunarkjarnann við Garðatorg.
Falleg og skjólgóð verönd / garður að framanverðu við húsið auk þess sem útgengt er út á lítla verönd út úr alrými á efri hæð - grillverönd.
Mikið útsýni yfir höfuðborgarsvæði og yfir sjóinn úr sólstofu.
Húsið er byggt 1980 en viðbyggingin var gerð árið 2011, samtals 34,4 fm. Viðbyggingin er vandaður sólskáli með hita- og kuldatemprandi gleri(hert öryggisgler frá Kanadíska fyrirtækinu Four Seasons í þaki á efri hæð og á neðri hæð er rúmgott svefnherbergi með sérbaðherbergi. Brunaútgangur á neðri hæð.
Nánar um eignina:
Íbúðarrýmið er á tveimur hæðum samtals 110,2 fm, geymsla merkt 0007 er 2,3 fm, sorpgeymsla merkt 0015 er 1,2 fm og bílskúrinn 19,3 fm og er samstæður tveimur öðrum bílskúrum - Sér ruslageymsla er fyrir hvert hús fyrir sig.
Innan íbúðarrýmis er forstofa, þvottahús, eldhús, 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa og sólstofa.
Jarðhæð/efri hæð:
Komið er inn í eignina á efri hæð inn í bjarta forstofu með ljósum flísum á gólfi og hvítum tvöföldum skáp. Úr forstofu er innangengt í þvottahús eignar og eru flísar á gólfi, opnanlegt fag á glugga og að auki góðu geymslurými.
Úr forstofu er komið inn í miðrými efri hæðar og er eldhúsið á vinstri hönd en herbergi og baðherbergi á hægri hönd.
Herbergið er um 12 fm með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Fyrir stækkun á húsinu var herbergið skráð sem hjónaherbergi.
Baðherbergið var allt endurnýjað fyrir ca 5- 6 árum og er mjög rúmgott með upphengdu salerni, baðkari m/sturtu, góðri innréttingu við og undir handlaug, granít borðplata, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Í eldhúsinu er vönduð innrétting frá Alno og er öll neðri innréttingin útdraganlegar skúffueiningar. Góður tækjaskápur með niðurdraganlegri hurð er í horninu við gluggann, tengi fyrir uppþvottavél, opnanlegur gluggi, granít borðplötur og parket á gólfi. Tækin eru einnig vönduð, gas helluborð með grilli og blöndunartæki við vask eru með hreyfiskynjara. Gaskútur er utandyra.
Stofan og borðstofan eru í samliggjandi, opnu og björtu rými með parketi á gólfi.
Sólstofan var hluti af viðbyggingu frá 2011 og er 18 fm með flísum á gólfi og gólfhita. Sérstakt sólvarnar- og kuldatemprandi gler er í þakgluggum.
Viðarverönd/grillaðstaða: Úr sólstofunni er útgengt á litla viðarverönd og er undir henni köld geymsla.
Neðri hæð:
Gengið er niður á neðri hæðina úr sólstofunni í svefnherbergið sem er samtals 16,4 fm en gólfflöturinn 18,0 fm. Stiginn niður er með marmaraþrepum.
Svefnherbergi - rúmgott hjónaherbergi, með opnum fataskáp með glerhurðum sem dragast einnig fyrir stigann og baðherbergið.
Baðherbergið er í góðri stærð með marmaraklædda sturtu, speglaskápur við handlaug, upphengt salerni, flísar á gólfi, gólfhiti og gott rými undir stiga fyrir kommóðu eða línskáp.
Bílskúr:
Bílskúrinn stendur sér er á endanum í þriggja bílskúra sérstæðri einingu merkt 11-0101 og er heitt og kalt vatn, vaskur, ágætis hillur, 3ja fasa rafmagn, mótor hefur verið endurnýjaður í bílskúrshurð auk þess sem ofn hefur verið endurnýjaður.
Viðhald síðustu ára.
2026. Kíttað meðfram gluggum austan megin. Endursteypt í plötu á sömu hlið.
2024. Útidyrahurð endurnýjuð.
2023. Hús málað að utan.
2023. Gluggar og tréverk málað.
2022. Nýr skjólveggur fyrir framan hús.
2020. Þak endurnýjað - Járn og pappi
2020. Baðherbergi efri hæðarendurnýjað
2020. Ný timburverönd sett. Lítil köld geymsla þar undir upprunaleg.
2022. Þaki lyft til að fá aukið loftrými.
2017. Bílskúr með 3ja fasa rafmagni og mótor endurnýjaður á hurð 2017
2011-2014. Allar innihurðar sprautaðar.
2011-2014. Sérafnotareitur hellulagður framan megin við húsið.
2011. Sólskáli og svefnherbergi á neðri hæð byggt við og tekið í notkun það sama ár.
Flestir ofnar endurnýjaðir og hluti raflagna endurnýjaðar.
Fasteignamat næsta árs 114.750.000.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 8457445 og á netfanginu gudrun@logheimili.is
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 133,0 fm ásamt kaldri geymslu sem er ekki inni í fermetratölu.
Köld geymsla er undir pallinum austan megin.