Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isSkarðshlíð 24-402 - Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með góðum svölum og fallegu útsýni - stærð 82,2 m²Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og svalir.
Nánari lýsing:
Forstofan/holið er með parketi á gólfi og tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og góðu rými fyrir bæði setustofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á steyptar suður svalir með fallegu útsýni.
Eldhúsið er rúmgott með góðri skápa- og vinnuaðstöðu. Dúkur er á gólfinu, borðkrókur og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi er rúmgott með dúk á gólfi og stórum innbyggðum fataskápum. Hin tvö herbergin eru björt og nýtast vel sem svefnherbergi, barnaherbergi eða skrifstofa, dúkur er á gólfum og fataskápur er í öðru þeirra.
Baðherbergið er með baðkari með sturtutækjum, wc og innréttingu með handlaug. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með góðri skápaaðstöðu.
Annað:- Gott útsýni er úr eigninni
- Góð staðsettning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og verslun Bónus
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.