Hraunhamar fasteignasala kynnir bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja í íbúð á 3 hæð (efsta hæð) með sérinngangi við Svöluás 1A í vel staðsett Áslandshverfinu í Hafnarfirði. Glæsilegt útsýni. Frábær staðsetning þar sem skóli og leikskóli eru í göngufjarlægð.
Eignin er skrá samtals 105,9 fm og þar af er 7,9 fm geymsla.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi, fataskápur
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og baðkar og það er sturtuaðstaða.
Eldhús opið inn í stofu, Snyrtileg innrétting í eldhúsi.
Stofa/borðstofa þaðan er útgengt á
svalir. Glæsilegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið. Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting með vaski, opnanlegur gluggi.
Gólfefni eru parket og flísar.
Búið er að koma fyrir sameiginlegum hleðslustöðvum á bílastæði.
Þetta er snyrtileg og vel umgengin eign á þessum góða stað í Áslandshverfinu í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar veitir:
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.isSkoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár ! – Hraunhamar.is