Fasteignaleitin
Skráð 11. mars 2026

Seljabraut 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
136.1 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.500.000 kr.
Fermetraverð
554.739 kr./m2
Fasteignamat
73.150.000 kr.
Brunabótamat
62.530.000 kr.
GS
Geir Sigurðsson
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2056238
Landnúmer
113149
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
ath.
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
2,22
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samþykktar og fyrirhugaðar eru framkvæmdir við gluggaskipti - sjá yfirlýsingu húsfélagsins dags. 18.03.2026. Staða hússjóðs er kr. 5.543.108,- Ekki kemur fram hvað framkvæmdasjóður er hátt hlutfall í hússjóðsgjaldi. Rekstur á bílageymslu er innifalin í hússjóðsgjaldi (undir annað).
Gallar
Hluti eignarhluta 00-09 í kjallara er merktur með bláum lit á litaðri teikningu í eignaskiptasamningi er nú opið rými sem var áður aðalinngangur fyrir húsið.Íbúðin er seld í því ástandi sem hún er nú í og þ.m.t. framangreindur hluti af ehl. 00-09 sem nú er óinnréttað og ekki aflokað.
Ath garðskáli / sólstofa þarfnast viðhalds og endurnýjunar.. 
Kvöð / kvaðir
Eignaskiptayfirlýsing sjá skjal nr. A-027418/1991 SAMNINGUR UM STÆÐI Í BÍLHÚSI. Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu.
Eignaskiptayfirlýsing sjá skjal nr. E-000949/2025 S 844-1029 Eignaskiptayfirlýsing. Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu
Lóðarleigusamningur sjá skjal nr. L-032213/19A  5.031 FM LEIGULÓÐ TIL 75 ÁRA FRÁ 01.01.74. KVAÐIR UM DOPIN BÍLSTÆÐI, STEFNU ÞAKHALLA OG LAGNIR BORGARSJ. OG STOFNANA HANS. ÁKV. UM LÓÐARFÉLAG.
Skiptayfirlýsing sjá skjal nr. L-32214 SAMEIGNARSAMNINGUR SJÁ NÁNAR SKJAL NR.14252/84.
Kvöð sjá skjal nr. E-007501/1984 KVÖÐ UM AÐ LEIKHERBERGI VERÐI EKKI SELT SÉRSTAKLEGA FRÁ 1. HÆÐ T.H. NEMA MEÐ SAMÞYKKI ALLRA EIGENDA STIGAHÚSSINS.
Björt 101,2 fm fjögurra herbergja enda íbúð á 1.hæð með garðskála og 4,7 fm geymslu auk 33,8 fm rými, merkt geymsla ehl. 00-09 á jarðhæð/kjallara - nú tvö herbergi með inngang úr sameign (hluti rýmisins er óinnréttað frá sameign), íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu. Samtals er birt stærð íbúðarrýmis 139,7 fm auk bílastæðis í bílageymslu. (stærðir skv. nýjum eignaskiptasamningi)
 
Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri í matvöruverslun, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Íbúðin skiptist í forstofurými, eldhús, lítið þvottaherbergi, þrjú herbergi þ.a. eitt herbergi opið án hurðar, baðherbergi, stofu og garðskála. Á jarðhæð er 33,9 fm rými (tvö herbergi) með góðri lofthæð, stórum gluggum og inngangi úr sameign. Einnig er geymsla íbúðarinnar á jarðhæð auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu. Innangengt er úr sameign í bílageymslu og tilheyrir íbúðinni bílastæði, merkt 11-0101. 

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofurými með gólfflísum og fataskápum. Við forstofurými er lítið þvottaherbergi með gólfflísum og skolvask. Eldhús er með gólfflísum, hvítri eldhúsinnréttingu, veggflísum, innfelldri lýsingu í eldhúsinnréttingu, keramik helluborði, viftu og veggofni. Öll herbergin eru með skápum og gólfflísum, eitt herbergið er opið án hurðar. Flísalagt baðherbergi er með glugga, baðkari, baðinnréttingu og vegghengdu salerni. Gólfhiti er í baðherbergi, hjónaherbergi og í eldhúsi. Á jarðhæð er 33,9 fm parketlagt rými, merkt geymsla. Rýmið er með inngangi úr sameign, góðri lofthæð og þremur góðum gluggum, ath. hluti rýmisins er óinnréttað. Á jarðhæð er einnig geymsla íbúðarinnar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og er innangengt úr sameign inn í bílageymslu þar sem er eitt bílastæði tilheyrir íbúðinni. Einnig er í bílageymslu sameiginlegt rými fyrir bílaþvott.  

Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, netfang: geir@husasalan.is. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1986
30.2 m2
Fasteignanúmer
2056238
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.580.000 kr.

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 1F
Opið hús:27. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Eskiás 1F
Eskiás 1F
210 Garðabær
90 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 77.700.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Lyngás 1A
Bílastæði
Skoða eignina Lyngás 1A
Lyngás 1A
210 Garðabær
82 m2
Fjölbýlishús
312
938 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Gjáhella 3
Skoða eignina Gjáhella 3
Gjáhella 3
221 Hafnarfjörður
142 m2
Atvinnuhúsn.
1
457 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 26
Bílskúr
Skoða eignina Stóragerði 26
Stóragerði 26
108 Reykjavík
132.1 m2
Fjölbýlishús
413
665 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin