Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð með tvennar verandir og tvö bílastæði. Íbúð merkt:101, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 100,5 fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 89,7 fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á suður verönd, um 11,3 fm, 2 svefnherbergi, og verönd út af hjónaherbergi, um 32,8 fm sem snýr inn í sameiginlegan garð, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign merkt: 0011, skráð 10,8 fm. Tvö bílstæði í bílakjallara merkt: B35 og B36. Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Skúla E. Sigurz, fasteignasali í GSM: 869-7014 eða skuli@fstorg.is Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉRSækja söluyfirlit HÉRVetrarbrautin er hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk.Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl.
Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi.
Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum.
Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum. Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli.
UtanhússfrágangurKlæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.
Innanhússfrágangur Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.
Tæki og búnaðurEldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.
Sameignir: Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.
Hönnun og framkvæmdirArkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Áætluð afhending er haust 2025