Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Endaraðhús í þéttbýliskjarnanum að Reykholti í Biskupstungum.
Húsið er byggt og klætt með timbri og er bárujárn á þaki. Bílskúr er steinsteyptur og klæddur að utan með bárujárni.
Að innan telur eigin:
Forstofu með flísum á gólfi og fataskáp
Inn af forstofu er
þvottahús, með samskonar flísum og í forstofu. Hillur eru á veggjum.
Svefnherbergi eru
tvö, fataskápar eru í þeim báðum.
Stofa er nokkuð stór og er hurð út í garð sem snýr á móti suðri.
Eldhús er með upprunalegri eldhúsinnréttingu og er búr inn af eldhúsi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, WC, handlaug og nýlegum sturtuklefa.
Parket er á öllum rýmum þar sem ekki eru flísar og flýtur það á milli rýma, án þröskulda.
Bílskúr er sérstæður í lengju með tveimur öðrum bílskúrum.
Flísar eru á gólfi bílskúrs, upptekin loft, með þakglugga og hurðaropnari á innkeyrsluhurð.
Bílaplan við bílskúr er steynsteypt. lagnir fyrir snjóbræðslu eru í bílaplani en þær eru ótengdar.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.