Fasteignaleitin
Skráð 8. júlí 2026

Grensás 22

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
113.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
719.052 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
234409223
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Landmark fasteignamiðlun kynnir: 

Grensás 22 er glæsilegt sumarhús. Lóðin er eignarland 5.250 fm. í landi Búrfells í Grímsnes- og Grafningshreppi.  Gott aðgengi er að svæðinu sem er aðeins í um 80 km fjarlægð frá Reykjavík.  Rafmagn og kalt vatn er komið.
Húsið verður 113,9 m2 að stærð og er teiknað með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum annað með útgengi á verönd,  góð aðstaða á öðru baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara.   Alrými í suðurhlutanum hvar gert er ráð fyrir eldhúsi og stofu með stórri rennihurð út á veröndina og gólfsíðum gluggum.  Þá er geymsla og tæknirými sem gengið er um utanfrá.  Um er að ræða timburhús á steyptri gólfplötu með gólfhitalögnum, klætt að utan með Lerki.  Gluggar eru timbur að innan, ál að utan, þrefalt gler.  Stórt þakskyggni yfir hluta af verönd sem veitir gott skjól, stór hluti af verönd er steyptur.  Húsið er afhent fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar að innan.  Mögulega er hægt að fá húsið þá lengra komið eftir óskum kaupanda.  Loft í vatn varmaskiptir verður kominn.  
Húsið er afhent fullklárað að utan með verönd, innan tilbúið til innréttinga.

Nánari upplýsingar veitir: 

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fasteignasali.


 

Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kerhraun B 114
Skoða eignina Kerhraun B 114
Kerhraun B 114
805 Selfoss
134.5 m2
Sumarhús
514
720 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Dynjandisvegur 16
Opið hús:11. júlí kl 13:00-13:30
Dynjandisvegur 16
806 Selfoss
112.1 m2
Sumarhús
413
624 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina A-Gata 8
Skoða eignina A-Gata 8
A-gata 8
805 Selfoss
100.2 m2
Sumarhús
54
589 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Skoða eignina Seljadalsvegur 4
Skoða eignina Seljadalsvegur 4
Seljadalsvegur 4
271 Mosfellsbær
119.6 m2
Sumarhús
312
1104 þ.kr./m2
132.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin