Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Fífuhjalli 13

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
201 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.000.000 kr.
Fermetraverð
741.294 kr./m2
Brunabótamat
81.500.000 kr.
Byggt 1990
Svalir
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20604776
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

Afar glæsileg efri sérhæð ásamt hluta úr jarðhæð með fallegu útsýni og innbyggðum bílskúr á eftirsóttum stað við Fífuhjalla í suðurhlíðum Kópavogs.
Fallegur og skjólgóður suðurgarður með heitum potti.
Eignin er á tveimur hæðum og er samtals 201 fm (þar af innbyggður bílskúr 28,5 fm)

Arkitekt hússins er Guðfinna Thordarson. 

Hér getur þú skoðað eignina í þrívídd – SMELLTU HÉR

Bókið skoðun: Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is eða Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is 
 
Lýsing eignar 
Falleg aðkoma er að húsinu. Steypt, munstrað plan með bílastæðum framan við húsið.

Efri hæð: 
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápar.
Stofur: Stórar og bjartar stofur, flísar á gólfi, verulega aukin lofthæð. Gólfsíðir gluggar sem ná á milli hæðanna setja mikinn og fallegan svip á húsið. Úr borðstofu er útgengt á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir sem snúa inn í garðinn.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, góðir skápar, aukin lofthæð. 
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salerni, gluggi.
Eldhúsið: Flísar á gólfi, opið við stofur, hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, gluggi, granít á borðum og stór eyja sem unnt er að sitja við.
Þvottahúsið: Mjög rúmgott, flísar á gólfi, vegleg innrétting með miklu skápaplássi (efri og neðri skápar), tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, gluggi. Innangengt er úr þvottahúsi inn í bílskúrinn.
Bílskúr: Flísar á gólfi, geymsluloft yfir hluta skúrsins, hiti, rafmagn og rennandi vatn. Búið er að stúka af hluta skúrsins og nýta sem skrifstofu/vinnnuaðstöðu, flísar á gólfi og gluggar í tvær áttir.  

Neðri hæð:
Sjónvarpshol: Flísar á gólfi, væri hægt að stúka af og nýta sem svefnherbergi.
Tvö góð svefnherbergi: parket á gólfum í báðum herbergjum, fataskápur í öðru.
Á gangi framan við herbergin eru einnig fataskápar.
Baðherbergi: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið, sturtutæki einnig við baðkarið,  hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni.
Við stigann á milli hæðanna er útgengt í garðinn sunnan við húsið. Garðurinn er mikill sælureitur, gróinn og vel hirtur með pöllum að hluta og heitum potti.

Garðurinn er mjög fallegur með pöllum og heitum potti (hitaveituskel). Góður geymsluskúr er einnig á lóðinni.
Lóðin er með timpurpöllum að hluta og tyrfð að hluta. 
Snjalllýsing er til staðar í eigninni.
Búið er að leggja þriggja fasa rafmagn og setja upp rafhleðslustöð í bílskúrnum.

Húsið að utanverðu (múr og tréverk) var málað árið 2021
Þakjárn hússins var yfirfarið og málað árið 2021

Glæsileg eign á eftirsóttum og veðursælum stað. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einnig stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Híbýli
http://www.hibyli.is

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116.1 m2
Fjölbýlishús
312
1197 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 116
3D Sýn
Álfhólsvegur 116
200 Kópavogur
99.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
836 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 14
Skoða eignina Hafnarbraut 14
Hafnarbraut 14
200 Kópavogur
40.6 m2
Fjölbýlishús
11
Fasteignamat 46.450.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hverafold 30
Á einni hæð
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverafold 30
Hverafold 30
112 Reykjavík
198.9 m2
Raðhús
715
678 þ.kr./m2
134.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin