RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA:Bjarta, falleg og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í hjarta Vesturbæjar.
Íbúðin er á efstu hæð í þríbýlishúsi, með heildarstærð upp á 62,3 m² og sérgeymslu á háalofti. Auk þess er sameiginlegt þvottahús í húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarný Björg Arnórsdóttir lgf., í 694-2526 / bjarny@remax.isEignin skiptist í :Sameiginlegur
inngangur er með íbúð á neðri hæð.
Stofan: er rúmgóð með parketi á gólfi. Þar er einnig bjartur borðkrókur við glugga. Falleg rennihurð er á milli stofu og svefnherbergis.
Svefnherbergi: er með parketi á gólfi, rúmgóðum fataskápum og útgengi á suðursvalir, þar sem hægt er að njóta sólar og útsýnis.
Barnaherbergið : er með parket á gólfi.
Eldhús: er upprunalegt, með flísum á gólfi.
Baðherbergi: er upprunalegt með flísum á gólfi, baðkari og handlaug.
Geymsla: Háaloft er yfir íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús eru einnig í sameign. Íbúðin hefur aðgang að sameiginlegum garði.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir með byggingaréttur á bílskúr eigninni.
Framkvæmdasaga samkvæmt eiganda :Árið 2024 - Þakrennur hreinsaðar og lagfærðar.
Árið 2021: Gerðar voru endurbætur í sameign í kjallara, þá voru gólf á gangi, hitageymslu og þvottahúsi flotuð auk þess sem veggir voru málaðir.
Árið 2020 - Frárennslilagnir fóðraðar.
Árið 2018: Skipt var um þakjárn og rennur á þaki.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk