Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Benijófar Pueblo - Spánn

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
240 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
106.500.000 kr.
Fermetraverð
443.750 kr./m2
Fasteignanúmer
9976333_1
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Glæsileg villa (endursala) með einkasundlaug og stórri þakverönd í hjarta Benijófar
Fasteignasalan TORG og NovusHabitat kynna einstaklega glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum stað í Benijófar á Costa Blanca. Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða eign sem er alls 240 fm á tveimur hæðum, staðsett á 329 fm einkalóð með fallegum garði, einkasundlaug, stórum útisvæðum og glæsilegri 54 fm þakverönd með frábæru útsýni.
Eignin býður upp á fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð og björt alrými ásamt fjölbreyttum möguleikum til afþreyingar og samveru.
Húsið sameinar nútímaleg þægindi, góða hönnun og eftirsótta staðsetningu þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Nánari lýsing;
Á aðalhæðinni er björt forstofa með góðu skápaplássi, þvottahús og auka geymsluaðstaða. Þar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af glæsileg hjónasvíta með sérbaðherbergi og fataherbergi.
Opið eldhús, borðstofa og stofa mynda einstaklega bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum og beinu útgengi út í garð og sundlaugarsvæði sem skapa fullkomna tengingu milli inni- og útirýmis.
Neðri hæð eignarinnar býður upp á tvö stór svefnherbergi til viðbótar ásamt rúmgóðu sjónvarpsholi og skemmtilegu afþreyingarrými með bar, poolborði og píluaðstöðu. Þar eru einnig tvær geymslur sem auka notagildi eignarinnar enn frekar.
Útisvæðið er einstaklega vel hannað með fallegum garði, einkasundlaug, veröndum og stórri þakverönd þar sem hægt er að njóta spænsku sólarinnar allan ársins hring. Einkabílastæði fylgir eigninni.
Eignin er staðsett í vinsæla bænum Benijófar þar sem finna má fjölbreytta þjónustu, veitingastaði, kaffihús og verslanir í göngufæri. Aðeins um 7,7 km eru að fallegum sandströndum Costa Blanca og golfvellir eru í örstuttri akstursfjarlægð.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við kaup á fasteignum á Spáni frá upphafi til enda. Við aðstoðum kaupendur við val á eign, samningagerð, samskipti við seljendur og lögfræðinga, fjármögnun, afhendingu og allt ferlið sem fylgir fasteignakaupum erlendis. Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða með tölvupósti.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.
Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum.
Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð.
Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 80
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Snæland 2
Opið hús:04. júní kl 16:45-17:30
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
917 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 107
Hafnarstræti 107
600 Akureyri
161.5 m2
Atvinnuhúsn.
34
613 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 9
IMG_7288.jpeg
Skoða eignina Maríugata 9
Maríugata 9
210 Garðabær
133.6 m2
Fjölbýlishús
423
845 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin