Betri Stofan kynnir til sölu: Mikið endurnýjað og vel skipulagt 241,5 fm einbýlishús á þessum eftirsótta stað miðsvæðið í Reykjavík. Húsið er vandlega hannað og teiknað af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið skiptist í 216,9 fm Íbúðarrými og 24,6 fm bílskúr. Gott geymslurými er undir bílskúr (ekki inn í skráðum fm hússins). Skv. seljanda er húsið ca. 20 fm stærra en skráning segir til um þar sem þvottahús og baðherbergi neðri hæðar er ekki inn í skráðum fm. Stórar flísalagðar svalir eru á suður og vesturhlið hússins og fallegur garður. Einstök heildarhönnun að innan og utan með einkennum höfundar. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Liska ehf sá um hönnun á lýsing í húsinu. Rafmagnstafla var endurnýjuð ásamt tenglum árið 2016. Þak yfirfarið og málað 2020. Húsið málað að utan 2020Skipting efri hæðar: Forstofa, forstofuherbergi, gestasalerni, stofur, eldhús og búr Á neðri hæð eru: Fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og stórt baðherbergi.
Einstakt stórt einbýlishús miðsvæðis í Reykjavík.
Nánari lýsing efri hæðar: Forstofa: flísalögð og með fataskápum.
Gesta salerni: flísar á gólfi
Forstofuherbergi: parketlagt og með fataskápum.
Eldhús: nýleg sérsmíðuð innrétting (frá 2016), parket á gólfi og vönduð tæki. Búr innaf eldhúsi. Bæði eldhús og búr var endurnýjað árið 2016.
Borðstofa: parketlögð.
Stofa/borðstofa: rúmgóðar, bjartar og parketlagaðar stofur með arni og útgengi á góðar svalir.
Nánari lýsing neðri hæðar:Þvottahús: málað gólf, skolvaskur og innrétting með góðu skápaplássi.
4 svefnherbergi: parketlögð, rúmgóð og með fataskápum.
Baðherbergi: mjög rúmgott, flísar á gólfi, vönduð innrétting, baðkar, sturta og gluggi. Baðherbergi var allt endurnýjað árið 2016.
Sjónvarpshol: flísalagt.
Árið 2019 var lóð endurnýjuð. Framgarður er algerlega nýr, þ.e. teiknaður og gerður upp frá grunni. Lagt fyrir ljósum
Austan megin við húsið er garður einnig teiknaður og gerður upp frá grunni. Stór harðviðarpallur.
Um er að ræða vandað einbýlishús þar sem einstök heildarhönnun Helga Hjálmarssonar arkitekts fær að njóta sín.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is