Fasteignaleitin
Opið hús:11. ágúst kl 16:30-17:00
Skráð 7. ágúst 2026

Hraunbær 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
58.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
850.085 kr./m2
Brunabótamat
30.900.000 kr.
Byggt 1967
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20445981
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Hraunbæ 38, 110 Reykjavík. Eignin er skráð 58,7 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 53,5 m2 og geymsla 5,2 m2, og samanstendur af anddyri, eldhúsi og stofu í opnu rými, baðherbergi og svefnherbergi auk sérgeymslu og sameignar. Ath. Eignin er laus við undirritun kaupsamnings. Frábær fjárfesting og/eða fyrstu kaup!

Nánari lýsing.
Anddyri:
Tvöfaldur fataskápur. Parket á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Á gólfi er parket og í eldhúsi er gluggi til suðurs. 
Stofa: Í opnu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á suður svalir eignar.
Baðherbergi: Veggfestur spegill, skápur við hlið spegils, neðri skápar undir handlaug, vegghengt wc, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Svefnherbergi: Rúmgott með ágætum fataskáp, parketi á gólfi og glugga til suðurs. 
Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Norðan við húsið eru sameiginleg bílastæði og sunnan við er sameiginlegur garður með leiktækjum og knattspyrnuvöllur. 

Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í verslun og þjónustu, Árbæjarlaugina og fallega náttúru Elliðárdalsins. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@heimili.is

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 18
Bókið skoðun
Skoða eignina Dalsbraut 18
Dalsbraut 18
260 Reykjanesbær
67.5 m2
Fjölbýlishús
211
800 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 18
Bílastæði
Bókið skoðun
Skoða eignina Áshamar 18
Áshamar 18
221 Hafnarfjörður
59.5 m2
Fjölbýlishús
211
990 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Hleðslustöð
Bókið skoðun
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
66.3 m2
Fjölbýlishús
211
1130 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin