Vorum að fá fallegt sumarhús í landi Snóksdals 1 í Dalabyggð u.þ.b. 140 km. frá Reykjavík. Eignin er á 9.498 m2 eignalóð með glæsilegur útsýni til sjávar og sveita.
Húsið er skráð 62,6 m2 timburhús á steyptum sökklum byggt árið 2004. Byggð hefur verið c.a. 10 m2 geymsla við húsið sem ekki er skráð í fermetratölu og er virkilega góð viðbót. Svefnloft er yfir hluta hússins og er það ekki skráð í fermetratölu.
Húsið er upphitað með rafmagnsofnum og varmadælu, heitt vatn er frá 50.L rafmagnshitakút. Timburverönd er kringum húsið ásamt heitum potti. Húsið er vandað og hefur fengið gott viðhald. Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.isSkipting eignar: forstofa/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, geymslu, aukageymslu og milliloft/svefnloft.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða
forstofu/hol. þar er góður timburstigi upp á
svefnloft. Einnig er góð
geymsla inn af anddyri. Flísar eru á gólfi
Tvö rúmgóð svefnherbergi,
Svefnherbergi 1: Með góðri koju.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með hjónarúmi og góðum fataskápum. Parket á gólfum.
Baðherbergi með dúk á gólfi og flísum á veggjum, góður gluggi, sturtuklefi og innrétting með handlaug. Tengi fyrri þvottavél er inn á baði.
Eldhús og stofa er í einu stóru opnu rými þar sem er glæsilegt útsýni þegar setið er til borðs. Eldhús innrétting er frá Ikea, uppþvottavél, háfur og eldavél.
Stofa með harðarket frá Harðviðarval og er útgegnt á góða timburverönd sem snýr til suðurs og vestur þar sem maður nýtur sólar allan daginn.
Bústaðurinn hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og er í góðu standi að sögn eiganda. Hann hefur verið hitaður upp allt árið með varmadælu og ofnum, þegar húsið hefur staðið og er ekki í notkun hefur það verið háttað þannig að innihita hefvur verið haldið í ca 17° og er ekki lengi að ná stofuhita þegar komið er á staðinn. 50L hitakútur er til upphitunar vatns. Á gólfum er harðarket frá Harðviðarval