Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á frábærum stað. Íbúð á 4. hæð að Suðurbraut 14 í Hafnarfirði. Rúmgott þvottahús er innan íbúðar. V-svalir með útsýni út að sjó. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar, sundlaug, golfvöll o.fl. Skipulag telur: forstofa, tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 91,1 m2.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing:Forstofa er inn af snyrtilegri teppalagðri sameign. Fatahengi í forstofuholi. Parket á gólfi.
Stofa er björt með útgengi út á V-svalir. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Neðri skápar á öðrum veggnum með svörtum vaski og blöndunartækjum. Á hinum veggnum nær innrétting upp í loft. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. AEG tæki og háfur úr lofti. Parket flæðir á milli rýma. Gott borðpláss.
Þvottahús er inn af eldhúsi, aðskilið með rennihurð. Borð, vaskur og aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af þvottahúsi er geymsla/búr. Gráar flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott. Fataskápar eru innfelldir og ná upp í loft.
Barnaherbergi er með innskoti fyrir föt (fataskápur án hurða). Parket á gólfi.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og upp veggi. Sturta með gleri. Upphengt salerni, hvítur skápur undir handlaug og grunnur skápur á vegg á móti.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Rúmgóð með tveimur gluggum.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.