ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Lágseyla 12, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 225-8744 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 228.3 fm. Eignin býður upp á mikla möguleika og hefur einstakt hafútsýni.
Nánari upplýsingar veita:
Ásta María Jónasdóttir lgf. í síma 847-5746, tölvupóstur asta@allt.is.
Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is
3 fasa rafmagnstafla
Nýjir rofar og tenglar
Búið að endurnýja loftaklæðningu í svefnherbergi og á gangi
Þvottahús hefur verið endurnýjað
Baðherbergi hefur verið endurnýjað
Nánari lýsing eignar:Anddyri: Flísalagt, rúmgóður fataskápur.
Gestasalerni: Flísalagt, nýleg innrétting og handlaug. Salerni.
Eldhús: Upprunalegt, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu
Stofa/ borðstofa: Parket á gólfi, stórt opið rými. Útgengt á sólpall, einstakt hafútsýni.
Svefnherbergisgangur hefur nýtt parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Nýtt parket á gólfi, nýr fataskápur.
Barnaherbergin eru þrjú, öll með nýju parketi á gólfi. Eitt af þeim með hefur nýjan fataskáp.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað, flísalagt hólf í gólf, hvít innrétting með handlaug. Upphengt salerni, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús: Hefur verið endurnýjað, gráar flísar úr Birgisson, hvít háglans innrétting. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Rúmgóð geymsla er innaf þvottahúsi.
Bílskúr: Stór og góður skúr, 50m2. Geymsluloft, bílskúr hefur heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.