Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Um er að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða 139,7 fm. hæð með sérinngangi á efri hæð við Miðbraut 24, á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi. Einstaklega flott útsýni
Auk þess er tvöfaldur bílskúr, annar 28,8 fm og hinn 29,4 fm. Búið er að breyta skipulagi bílskúra á þann veg að útbúinn var sér studio íbúð úr einum bílskúr og úr hluta af hinum bílskúrnum. Sá hluti sem ekki er íbúðarhluti, nýtist vel sem stór og góð bílskúrs geymsla, auk þess er svo önnur lítil geymsla á hlið hússins sem fylgir íbúðinni.
Samtals er heildar fermetrastærð á íbúð og studííbúð/bílskúr er 197,7 fm. Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3DBókaðu skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isUm er að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða hæð með sérinngangi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi. Forstofa er flísalögð með aðgengi að sameign, þar er sameiginlegt þvottahús.
Frá forstofu er gengið upp teppalagðan stigagang á hæðina þar sem stór gluggi sem veitir flotta birtu inn. Á efri palli er rúmgott hol með fataskápum. Gólf efri hæðar er með flot á gólfi og gólfhita.
Eldhúsið er rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu og opið að hluta inn í borðstofu og stofu sem skapar gott flæði í rýminu. Eldhúsinnrétting er vönduð með granít borðplötum með helluborði og hvítum vaski, Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél og innbyggður kælir. Bökunarofn er í vinnuhæð. Borðstofan og stofan er afar björt og rúmgóð með fallegu útsýni til sjávar. Útgengt er úr stofu út á norð-vestur svalir sem njóta góðrar seinni parts sólar ásamt stórfenglegu útsýni. Svefnherbergi eru tvö og bæði rúmgóð með stórum gluggum. Úr hjónaherbergi er einnig útgengt á fyrrgreindar svalir. Baðherbergi er mjög rúmgott með glugga, frístandandi baðkari og flísalagðri sturtu. Innréttingar eru vandaðar, þar á meðal vaskur, salerni og handklæðaofn. Inn af baðherbergi er gott rými með fataskápum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt glugga.
Gólfhiti er á allri hæðinni nema í forstofu. Gólf eru flotuð í íbúðinni að öðru leyti en forstofa er flísalögð og stigagangur teppalagður.
Endurbætur hafa verið gerðar á eigninni, m.a. hefur verið skipt um allar vatnslagnir og rafmagn að hluta endurnýjað, þar á meðal tafla.
Samkvæmt upprunalegum teikningum voru þrjú svefnherbergi og er möguleiki á að breyta skipulagi aftur í samræmi við það.
Stúdíóíbúð / bílskúrÁ lóðinni er sérlega áhugavert og fjölnota rými sem áður voru nýttir sem tveir samliggjandi bílskúrar. Búið er að breyta stærstum hluta rýmisins, um það bil 3/4, í stúdíóíbúð með góðri nýtingu sem hentar vel til útleigu, sem vinnustofa eða sem sjálfstætt rými fyrir fjölskyldumeðlim. Eftir stendur um 1/4 hluti sem nýttur er sem geymsla/bílskúr. Tvær bílskúrshurðir eru á rýminu. Önnur þeirra er virk og rafdrifin inn í geymsluhlutann. Hin hefur verið fest og þétt til að tryggja veðurheldni. Rýmið býður upp á mikla möguleika og sveigjanleika í nýtingu.
Aðrar upplýsingarÍ kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt 5,5 fm. sérgeymslu.
Húsið hefur notið vandaðs viðhalds í gegnum árin með hliðsjón af staðsetningu við sjó. Nánast allir gluggar hafa verið endurnýjaðir nýlega og reglulega hefur verið ráðist í múrviðgerðir eftir þörfum. Þá hefur húsið einnig verið drenað og sprungur lagfærðar og var það málað að utan sumarið 2025, sem gefur eigninni snyrtilegt yfirbragð og góða vernd.
Eignin er staðsett á frábærum stað á Seltjarnarnesi, stutt frá golfvelli, skólum, leikskólum, íþróttasvæði Gróttu og sundlaug. Þá er í göngufæri falleg strandlengja og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.