Fasteignaleitin
Skráð 16. feb. 2026

Miðtún 3

EinbýlishúsAusturland/Seyðisfjörður-710
146.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.500.000 kr.
Fermetraverð
269.809 kr./m2
Fasteignamat
33.700.000 kr.
Brunabótamat
69.800.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2168621
Landnúmer
155145
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Frárennslislagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegt/þarf að skoða vel
Þak
Endurnýjað að hluta fyrir 5-10 árum að hluta 2023.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Lóð
0
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
ATH ekki tæmandi talning: Húsið er að mestu leyti upprunalegt að innan og utanverðu. Allar innréttingar eru upprunalegar nema fataskápar í herbergi.
Öll neðri hæð hússins þarfnast standsetningar/endurbóta að mestu eða öllu leyti. Gluggar og gler ásamt hurðum eru upprunalegar, þarf að skoða. 
Sýnilegar rakaúrfellingar eru á gangi á efri palli. Drena þarf húsið, rakaúrfellingar eru sýnilegar á veggjum í kjallara. Rúða í útihurð í þvottahúsi er brotinn. Gólf í þvottahúsi er opið þar sem rör liggja í gegn, opið er að niðurfallsröri í vegg í bílskúr (eldhús/anddyri) Rofar og tenglar af ýmsum gerðum og frá ýmsum tímum m.a. Ticino. 
BYR fasteignasala kynnir í sölu MIÐTÚN 3, 710 Seyðisfjörður. Einbýlishús á pöllum með innbyggðum bílskúr sem var nýttur sem íbúð".
Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er steypt, byggt árið 1965, kjallara 50.4 m², hæð (neðri pallur) 49.2 m² og hæð (efri pallur) 46.8 m², samtals 146.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar;
Hæð (neðri pallur):
Anddyri, skáli, eldhús og stofa, stigi og tröppur. Hæð (efri pallur): Þrjú herbergi, gangur og baðherbergi.
Kjallari: Þvottahús, geymsla og inntök, bílskúr/„íbúð" - anddyri/eldhús, herbergi og baðherbergi. 

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Gengið er upp timbur tröppur að anddyri hússins, þar við er timburverönd. 
Hæð (neðri pallur): Anddyri, flísar á gólfi, þaðan er gengið inn í skála, rafmagnstafla. 
Skáli, parket á gólfi, þaðan er gengið til hægri í eldhús og til stofu, til vinstri liggja tröppur á efri pall og stigi niður í kjallara.
Eldhús, upprunaleg U-laga innrétting, helluborð, vifta og ofn í vinnuhæð, gert er ráð uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt), borðkrókur, 
lúga er í innréttingu yfir í skála. Skáli hefur verið nýttur sem borðstofa, skápur er neðan við lúgu úr eldhúsi. 
Stofa er opin við skála, parket á gólfi, upptekið loft, panilklæðning. 
Tröppur að hæð (efri palli) eru parketlagðar, gangur með parketi á gólfi.
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur, parket á gólfi
Herbergi II, parket á gólfi. 
Herbergi III, parket á gólfi. 
Baðherbergi, dúkflísar á gólfi, veggir eru flísalagðir upp á miðjan vegg að mestu leyti. Vaskinnrétting, salerni og sturta, gluggi. 
Stigi, málaður, neðan við stiga er þvottahús og geymsla, steypt málað gólf, sturta, útgengt er úr þvottahúsi út í bakgarð um steyptan stiga.
Inntaksrými er inn af þvottahúsi, málað gólf. 
Bílskúr/„íbúð", bílskúr hefur ekki verið nýttur sem bílskúr heldur sem „íbúð", gert er ráð fyrir anddyri/eldhúsi, herbergi og baðherbergi. 
Anddyri/eldhús, búið er að fjarlægja innréttingu úr eldhúsi, málað gófi, innangengt í herbergi og baðherbergi.
Herbergi, korkur á gólfi, fataskápur innbyggður án hurða, gluggar. Baðherbergi, dúkur á gólfi, handlaug, salerni og sturtuaðstaða.
ATH ekki er um að ræða skráða íbúð, ekkert liggur fyrir um hvort umrædd nýting samrýmdist kröfum opinberra aðila, eins og heilbrigðis- og byggingaryfirvalda, enda er rýmið upprunalega teiknað sem bílskúr. 

Miðtún 3 er steypt hús á pöllum, hæðir eru klæddar að utanverðu með járn- og timburklæðningu í bland. Kjallari er Steniklæddur að mestu leyti og málaður að hluta til. Tvíhalla þak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Annar hluti þaksins var endurnýjað fyrir um 3 árum, það er dúkur á lægri stallinum en nýlegt bárujárn á efri stallinum og þakkanntar. 
Hellulögð stétt er framan við húsið að tröppum upp að inngangi. Malbik er í bílastæði framan við bílskúr.
Timburverönd er framan og aftan við húsið. Lóð er gróin. 
Lóð er gróin, 630.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Helmingur þaks var endurnýjaður fyrir u.þ.b. 5-10 árum, hinn helmingurinn var endurnýjaður árið 2023.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-8621. Miðtún 3, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 146.4 m².
Brunabótamat: 69.800.000 kr.
Fasteignamat: 33.700.000 kr.
Byggingarár: 1965.
Byggingarefni: Steypa
Eignarhald:
01.0001- Íbúðarherberbergi í kjallara 20.8 Brúttó m².
01.0002 - Íbúðarherberbergi í kjallara 29.6 Brúttó m².
01.0101- Íbúð á hæð 49.2 Brúttó m².
01.0102- Íbúðarherberbergi á hæð 46.8 Brúttó m².
Landeignanúmer: L155145. Íbúðarhúsalóð. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brúarfljót 3
Skoða eignina Brúarfljót 3
Brúarfljót 3
270 Mosfellsbær
50 m2
Atvinnuhúsn.
638 þ.kr./m2
31.900.000 kr.
Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 íb. 105
Opið hús:21. mars kl 13:00-13:30
Hnjúkamói 16 íb. 105
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 (105)
Opið hús:19. mars kl 12:00-13:00
Hnjúkamói 16 (105)
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin