LIND Fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Vel skipulagða fjögurra til fimm herbergja íbúð á jarðhæð, með verönd á 32 fm sérafnotarétti við Vesturberg 8 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Eignin er skráð 102,7 fm., þar af íbúðarrými 97,5 og geymsla 5,2 fm., og telur í dag anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu með útgengi á hellulagða verönd til vesturs.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Stofa: Parket á gólfi, stórir gluggar og útgengt í stóran (32fm) sér garð til vesturs.
Eldhús: Nýleg innrétting og tæki, gott skápapláss, innfelld lýsing í lofti, ágætur borðkrókur, flísar á gólfi, gólfhiti og gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi: Nýleg innrétting með tengi fyrir þvottavél, vegghengt wc, baðkar með sturtuhaus, handklæðaofn á vegg, flísar á gólfi og á veggjum, hiti í gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Bjart og rúmgott, innbyggðir fataskápar, gluggi til austurs, parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: parket á gólfi, gluggi til vesturs, fataskápur innan herbergis.
Geymsla: Rúmgóð sér geymsla íbúðar í sameign.
Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.
Vel skipulögð eign í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.