Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð og björt þriggja herbergja 99,7 fm. íbúð á þriðju hæð (íbúð 314) í nýlegu lyftu
fjölbýlishúsi við Sunnusmára 2, 201 Kópavogi. Með íbúðinni fylgir sér
bílastæði í bílakjallara (merkt 05B68). Tengimöguleiki fyrir rafhleðslu við bílastæði.
Bjartir og stórir gluggar í alrými með útsýni. Íbúðin er innréttuð með vönduðum innréttingum, steinborðplötur á eldhúsi og baðherbergi, harðparket á gólfum og votrými flísalögð.
Gólfhiti er á allri íbúðinni og sérstætt loftræstikerfi er innan íbúðar.
Eignin er skráð 99,2 fm. þar af er 8,3 fm geymsla. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott og bjart alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús. Útgengt út á svalir úr stofu. Hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús.
Smelltu á link til að skoða íbúð í 3-DBókið skoðun hjá: Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing: Forstofa er með fataskáp og harðparket á gólfi.
Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Innrétting er með steinborðplötu og undirlímdri handlaug, speglaskápur með led lýsingu, sturta með gleri og upphengt salerni ásamt handklæðaofni.
Eldhús/borðstofa er opnu alrými með stofu, harðparket á gólfi.
Eldhús innnrétting er með bæði efri og neðri skápa. Lýsing undir efri skápum og steinn á borði og undirlímdur vaskur. Span helluborð, ofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur.
Stofan er rúmgóð og einstaklega björt. Útgengt út á suður svalir með gott útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með stórum fataskáp, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með einföldum fataskáp, harðparket á gólfi.
Sérgeymsla telur 8,3 fm. Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu.
Almennt um húsið: Sunnusmári 2 er sjö hæða staðsteypt hús úr járnbentri steinsteypu og einangrað að utan. Húsið er klætt með sementsplötum og litaðri álklæðningu. Ál-tré gluggar með tvöföldu K- einangrunargleri. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Alls eru 24 íbúðir í Sunnusmára 2 ásamt atvinnurými á 1. hæð.
Eftirsótt staðsetning í Kópavogi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.