Fasteignaleitin
Opið hús:22. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 18. sept. 2024
Deila eign
Deila

Rauðhamrar 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
134.6 m2
4 Herb.
Verð
92.500.000 kr.
Fermetraverð
687.221 kr./m2
Fasteignamat
74.550.000 kr.
Brunabótamat
57.580.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1989
Bílskúr
Fasteignanúmer
2038655
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
2
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: **Eignin getur verið afhent fljótlega eftir kaupsamning **
Sérlega glæsileg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð með bílskúr í góðu húsi í Hamrahverfinu í Grafarvogi. íbúðin er skráð á 2.hæð (1/2 hæð upp frá anddyri hússins). Mikið er búið að endurnýja innan íbúðar, Innrétting í eldhúsi, baðherbergi, gólfefni og innihurðar. Húsið var allt málað og múrviðgert árið 2023 ásamt því var farið í að yfirfara og endurnýja þá glugga og gler sem til þurfti. Þak, rennur og lofttúður á þaki var endurnýjað árið 2024. Húsið er í sérlega góðu standi. íbúðin skiptist í forstofu, mjög stórt alrými sem rúmar eldhús, borðstofu, setustofu og sjónvarpshol, baðherbergi, sér þvottaherbergi og 3 svefnherbergi. Einnig fylgir íbúðinni geymsla og bílskúr. 
Um er að ræða fallega endurgerða íbúð í sérlega góðu húsi. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er inn í anddyri á jarðhæð þar sem aðeins er gengið upp 1/2 hæð að íbúðinni. 
Forstofa: komið er inn í forstofu með góðum þreföldum fataskáp sem nær upp í loft og fallegu harðparketi á gólfi. Opið er yfir í alrýmið til vinstri en einnig er hægt að ganga inn á svefnherbergisgang til hægri frá forstofunni. 
Alrými: Eldhús, borðstofa, setustofa og sjónvarpshol. 
Eldhús:
Eldhúsið er með mjög stórri og góðri innréttingu í U með eyju sem snýr yfir í stofurýmið. Við vegginn eru skápar að hluta til frá gólfi og upp í loft með góðum búrskáp, innbyggðum kælir og innbyggðum frystiskáp í fullri stærð. Ofn er í vinnuhæð í innréttingunni. Neðri skápar taka við innréttingunni frá tækjavegg sem ganga undir glugga við vask og yfir í stóra eldunareyju með span helluborði. Skápar eru dökkbæsuðu viðar útliti með ljósgrárri borðplötu sem gengur niður hlið eyjunnar. setusvæði er við eyjuna. Fallegt harðparket er á gólfi. 
Borðstofa + setustofa + sjónvarpshol: Stofurými íbúðarinnar er sérlega stórt. Gott rými er fyrir framan eldhúsið fyrir borðstofu, þar inn af er rými fyrir setustofu og í vinkil inn kemur svo mjög rúmgott sjónvarpshol. Frá sjónvarpsholinu er hægt að ganga inn á svefnherbergisganginn. Útgengt er á rúmgóðar suðursvalir sem snúa  út í garð. Fallegt harðparket er á gólfi. 
Baðherbergi: Baðherbergið er sérlega fallega endurnýjað með dökkri innréttingu undir ofanáliggjandi vaski með ljósri borðplötu. Salernið er uppengt og vatnskassi klæddur með fallegri viðarklæðningu í stíl við innréttingar. Fallegar steingráar flísar eru á gólfi á á veggjum í sturturými. Sturtan er beint á gólf með fallegu glerskilrúmi með svörtum stálramma. Blöndunartæki eru svört. 
3 x herbergi: Svefnherbergin eru þrjú öll með fallegu harðparketi á gólfi. Í hjónaherbergi eru góðir fataskápar veggja á milli sem ná upp í loft. 
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er með flísum á gólfi og innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með skápum fyrir ofan. 
Geymsla: Geymsla er í sameign með hillum. 
Bílskúr: Bílskúr er í bílskúrslengju fyrir framan húsið. Sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari er á hurðinni. í skúrnum er hitaveita og heitt og kalt rennandi vatn. 
Húsið: Húsið var málað og múrviðgert árið 2023 ásamt því að þak, þakrennur og lofttúður voru endurnýjaðar árið 2024. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/02/202364.800.000 kr.77.000.000 kr.134.6 m2572.065 kr.
10/09/202148.050.000 kr.56.500.000 kr.134.6 m2419.762 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1989
20 m2
Fasteignanúmer
2038655
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.980.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
102.1 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Garðhús 12
Bílskúr
Opið hús:25. sept. kl 12:15-12:45
Skoða eignina Garðhús 12
Garðhús 12
112 Reykjavík
171.2 m2
Fjölbýlishús
523
552 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5C - íb. 401
Bílastæði
Jöfursbás 5C - íb. 401
112 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5C - íb. 301
Bílastæði
Jöfursbás 5C - íb. 301
112 Reykjavík
97.6 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
90.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin