Fasteignaleitin
Skráð 25. okt. 2025
Deila eign
Deila

Spóahólar 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
116.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
652.623 kr./m2
Fasteignamat
61.100.000 kr.
Brunabótamat
59.590.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Byggt 1978
Þvottahús
Lyfta
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2049854
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Spóahólar 4, 111 Reykjavík.

Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í góðu húsi með  bílskúr, húsið er klætt að utan 
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Miðsvæðis er parketlagt hol. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö barnaherbergi og stórt hjónaherbergi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Innrétting, baðkar/sturta og opnanlegur gluggi.
Eldhús með vandaðri eldri innréttingu með góðu skápaplássi, borðkrókur er í eldhúsi. Inn af eldhúsinu er þvottahús/geymsla.
Stofan er mjög rúmgóð og er hún parketlögð. gegnt er út á stórar s/v svalir úr stofu.
Sér geymsla er á jarðhæðinni sem og hjólageymsla. 
Íbúðinni fylgir góður bílskúr og er hann með hita, rafmagni  og vatni ásamt nýrri hurð og mótor.
Sameigninlega þvottaahús.

Áveðurshlið hússins var klædd 2015 og skipt um glugga og gler á þeirri hlið. Gólfefni eru flísar og parket. 
Nýtt þak 2023.

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/06/201624.500.000 kr.27.900.000 kr.116.3 m2239.896 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1978
21.8 m2
Fasteignanúmer
2049854
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.190.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurberg 16
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 16
Austurberg 16
111 Reykjavík
153.9 m2
Fjölbýlishús
413
500 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 16
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 16
Austurberg 16
111 Reykjavík
130.4 m2
Fjölbýlishús
413
559 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Stelkshólar 4
Opið hús:30. okt. kl 18:30-19:00
Skoða eignina Stelkshólar 4
Stelkshólar 4
111 Reykjavík
115 m2
Fjölbýlishús
413
657 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Skoða eignina Stelkshólar 4
Bílskúr
Skoða eignina Stelkshólar 4
Stelkshólar 4
111 Reykjavík
118.8 m2
Fjölbýlishús
413
647 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin